Milljónasektir vegna afturvirkni 13. september 2004 00:01
Tollayfirvöld endurskoðuðu nýlega tolla á matvöru sem flutt hafði verið til landsins í áratugi. Ákvörðunin var afturvirk sex ár aftur í tímann, eins og lög gera ráð fyrir og þurfti viðkomandi verslunarfyrirtæki að greiða fjörutíu og eina milljón í viðbótartolla löngu eftir að varan var seld. Samtök verslunar og þjónustu segja þetta ekki eina dæmið og hafa óskað eftir viðræðum við Fjármálaráðuneytið vegna málsins. Þau segja að svo virðist sem slíkum málum hafi farið fjölgandi og staðfest sé hjá tollyfirvöldum að gera megi ráð fyrir aukinni tíðni þeirra á næstunni. Gagnrýnt er að sex ára fyrningartíma sé of langur því vörur sem fluttar séu til landsins fari venjulega strax í endursölu og álagning miðist þá við þá tolla sem greiddir séu við innflutninginn. Emil B Karlsson hjá Samtökum Verslunar og þjónustu segir að þetta hafi valdið fyrirtækjum verulegum erfiðleikum. Hann segir þetta koma sér sérstaklega illa fyrir lítil fyrirtæki, sem selji vörur sínar jafn óðum og standi því ráðþrota ef endurskoðun mörgum árum síðar leiði í ljós að varan hafi verið í vitlausum flokki, sem geti valdið tugmiljóna króna sektum. Samtökin segja að eina leiðin fyrir fyrirtæki til að koma í veg fyrir að eiga yfir höfði sér endurákvörðun tollstjóra nokkur ár aftur í tímann, sé að krefjast bindandi álits tollstjóra í hvert sinn sem ný vara sé tollflokkuð. Það tefji þó tollafgreiðslu og auki verulega vinnuálag hjá tollstjóraembættunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Fleiri fréttir Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Sjá meira