Góður andi á Menningarnótt 21. ágúst 2004 00:01 ;
Ég er búin að þvælast út um allan bæ og hef farið á þá staði þar sem fjöldinn hefur verið þéttastur og ég er hreinlega að rifna úr hamingju. Andinn í bænum er rosalega fínn," sagði Sif Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarnætur, þegar Fréttablaðið ræddi við hana í gærkvöld. Sif segir að jafn mikill fjöldi fólks hafi ekki sést áður strax upp úr hádegi á Menningarnótt. Hún hafi staðið efst í Bankastrætinu um fjögurleytið og horft yfir mannhaf. Allir viðburðir fyrir börnin hafi verið mjög vel sóttir og augljóst sé að Menningarnótt sem fjölskylduhátíð hafi slegið í gegn þetta árið. Um níuleytið í gærkvöld sagði Sif stemninguna vera að breytast, enn hafi verið barnafólk í bænum en svo virtist sem yngstu börnin væru komin í háttinn. "Veðrið hefur verið yndislegt og ég get ekki ímyndað mér hvernig það hefði getað verið betra," sagði Sif í gærkvöldi. Umferð var mjög þung í Reykjavík í gær en hafði í gærkvöld gengið stórslysalaust fyrir sig að sögn Karls Steinars Valssonar, yfirlögregluþjóns í Reykjavík. Karl Steinar segir umferðina hafa vaxið jafnt og þétt frá hádegi. Margir hafi þó sýnt fyrirhyggju og lagt bílum sínum talsvert frá miðbænum og gengið það sem upp á hafi vantað. Um fjörutíu þúsund manns voru í miðbæ Reykjavíkur að deginum til samkvæmt tölum frá lögreglunni og bættist í þegar líða fór á kvöldið. Karl Steinar var sjálfur meira og minna í miðbænum og sagðist varla hafa séð ölvun á nokkrum manni um daginn, ásýnd mannlífsins hafi því verið mjög góð. Tómlegt var í risinu hjá miðbæjarpresti, á fundarstað týndra barna, en klukkan níu í gærkvöld höfðu aðeins fimm börn komið og beðið eftir foreldrum eða forráðamönnum sínum. Ekkert barnanna þurfti að bíða lengur en í klukkutíma eftir að verða sótt. hrs@frettabladid.is
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira