Olíuverð áhrif á sjávarútveg 21. ágúst 2004 00:01
Hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu getur aukið kostnað íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja um allt að þrjá milljarða króna á þessu ári að sögn Friðriks Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ. Hann segir rekstrargrundvöll margra útgerðarmanna í hættu. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað hratt og mikið á síðustu vikum og mánuðum. Bensín hefur hækkað um 12 prósent á þessu ári og munar um minna fyrir buddu meðalmannsins. Hækkun olíuverðs kemur hins vegar mun verr niður á sjávarútveginum. Friðrik segir að ef þetta ástand verður viðvarandi hafi það gríðarleg áhrif. Hann segir að ef verðið nú sé borið við verð fyrir einu ári, sé um að ræða kostnaðarauka vel á þriðja milljarð. Friðrik segir að þetta komi verst niður á þeim veiðum þar sem fari saman lágt afurðaverð og dræmar veiðar. Þá sé um að ræða tugi prósenta af heildarverðmæti, til dæmis á rækju og kolmunnaveiðum þar sem notuð eru mjög öflug skip. Friðrik segir að rækjuútgerðin geti til að mynda ekki bjargað sér fyrir horn með því að hækka verðið á rækjunni. Verið sé að keppa á erlendum mörkuðum og í rækjunni sé mikið framboð frá Kanada. Þar segir Friðrik að sé mikil veiði og olían skiptir þá því mun minna máli en Íslendinga. Hann segir fátt til ráða nema bíða og vona að verð lækki, en haldist olíuverð hátt áfram þá sé rekstri margra útgerðarmanna stefnt í voða.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira