3.821 í Reykjavíkurmaraþoni 21. ágúst 2004 00:01
3.821 maður tók þátt í Reykjavíkurmaraþoni, sem fram fór í blíðskaparveðri í dag, fleiri en nokkru sinni fyrr. Reykjavíkurmaraþon markar upphaf Menningarnætur í Reykjavík. Hlauparar í heilu maraþoni lögðu reyndar af stað klukkan tíu, en rétt fyrir ellefu gátu aðrir hitað upp í takt. Það var svo klukkan ellefu að Árni Þór Sigurðsson forseti borgarstjórnar setti Menningarnótt og ræsti hlaupara í 3ja kílómetra skemmtiskokki. Næstir fóru hlauparar í 10 kílómetrum og hálfu maraþoni, sem er 21 kílómetri, og síðastir hlauparar í 7 kílómetrum. Stemmningin var stórkostleg, og það var barið í bumbur, hlaupurum til heiðurs. Hlauparar streymdu í mark í öllum vegalengdum, en þátttaka í skemmtiskokki fór fram úr björtustu vonum, þannig að verðlaunapeningar kláruðust. Allir munu þó fá sinn skjöld að lokum. Ekki er tekinn tími í skemmtiskokki, en fyrstur til að koma í mark á mældum tíma var Gauti Jóhannesson í 10 kílómetra hlaupi. Hann sagði þetta vera besta árangur sinn í Reykjavíkurmaraþoni til þessa. Svíinn Maus Höine kom fyrstur í mark í maraþonhlaupi karla og hljóp hann 42 kílómetrana á 2 klst. 26 mínútum og 34 sekúndum. Þetta var í fyrsta sinn sem Maus tók þátt í Reykjavíkurmaraþoni og fyrsti sigur hans. Hann var þreyttur eftir hlaupið en mjög ánægður með veðrið og áhorfendur. Bandaríska konan Kate Davis sigraði í maraþonhlaupi kvenna á tímanum 2 klst. 59 mínútur og 51 sekúnda. Fyrstur Íslendinga í mark var Steinn Jóhannsson á 2 klst og 57 mínútum.
Fréttir Innlent Mest lesið Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Svandís segir nei Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Innlent Fleiri fréttir Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Sjá meira