Eitt fréttir Bylgjunnar 19. júní 2004 00:01
Stærsta frjálsíþróttamót sem haldið hefur verið hér á landi hefst á Laugardalsvellinum í dag. Keppni í a-riðli 2. deildar Evrópubikarkeppninnar byrjar klukkan 14 með sleggjukasti. Alls verður keppt í 21 grein í dag, m.a. í stangarstökkvi kvenna en þar er Þórey Edda Elísdóttir sigurstranglegust. 8-lið keppa í karlaflokki og jafnmörg lið í kvennaflokki. Evrópuknattspyrnusambandið ætlar að athuga atvik í leik Englendinga og Svisslendinga. Sjónvarpsupptökur þýsku sjónvarpsstöðvarinnar ZDF sýna að einn leikmanna Svisslendinga, Alexander Frei, hrækir á Steven Gerrard, leikmann enska landsliðsins. Frei neitar þessum ásökunum sem og fulltrúar svissneska knattspyrnusambandsins. Verði leikmaðurinn fundinn sekur gæti hann fengið 3ja leikja bann líkt og Ítalinn Francesco Totti sem staðinn var að því að skyrpa á Danann Christian Povlsen. Í dag verður leikið í d-riðli Evrópukeppni landsliða. Lettar mæta Þjóðverjum klukkan 16 og Hollendingar Tékkum klukkan 18.45. Tékkar standa best að vígi í riðlinum, eru með 3 stig eftir 2-1 sigur á Lettum. Þjóðverjar og Hollendingar eru með 1 stig eftir 1-1 jafntefli í 1. umferð riðilsins. Í gær gerðu Svíar og Ítalir jafntefli 1-1 og Danir unnu Búlgara 2-0. Svíar og Danir hafa 4 stig í riðlinum, Ítalir 2 og Búlgarar eru án stiga. Ítalir verða að vinna Búlgara í síðustu umferð og treysta á hagstæð úrslit hjá Dönum og Svíum. Phil Jackson þjálfari köfuboltaliðsins Los Angeles Lakers hætti í gær störfum. Það varð sameiginleg ákvörðun Jacksons og Jerry Buss, eiganda Lakers-liðsins, eftir fund með þeim félögum. Jackson er 58 ára og hefur níu sinnum stýrt liði til sigurs í NBA körfuboltanun, sex sinnum Chicago Bulls og þrisvar sinnum Los Angeles Lakers. Alls óvíst er hvað verður um Lakers-liðið á næsta ári því reiknað er með að margir leikmenn kjósi að fara frá félaginu. Bandaríkjamaðurinn Phil Mickelson og Japaninn Shigeki Maruyama hafa forystu þegar keppni er hálfnuð á opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Þeir eru báðir á 6 höggum undir pari. Bandaríkjamaðurinn Jeff Maggert er í þriðja sæti, höggi á eftir. Tiger Woods er í 18.-22. sæti, 7 höggum á eftir þeim Mickelson og Maruyama. Bein útsending frá þriðja keppnisdegi hefst á Sýn klukkan 20 í kvöld. Fjórir leikir verða í 1. deild karla í knattspyrnu í dag. Valur keppir við Þrótt, HK við Völsung, Fjölnir við Breiðablik og Þór við Stjörnuna. Allir leikirnir hefjast klukkan 14.
Íþróttir Mest lesið Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Íslenski boltinn „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ Íslenski boltinn Bale af golfvellinum og á skjáinn Enski boltinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Enski boltinn „Leyfa því að koma og nýta það á góðan hátt sem orku“ Íslenski boltinn „Var farinn að krampa upp í öllum vöðvum líkamans“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - Afturelding 2-1 | Mosfellingar í fallsæti eftir tap í Vesturbænum Íslenski boltinn Donnarumma skilinn eftir heima Enski boltinn Tap setur Ísland í erfiða stöðu Handbolti Uppgjörið: FH - ÍA 3-2 | Ótrúleg endurkoma heimamanna í Kaplakrika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ „Leyfa því að koma og nýta það á góðan hátt sem orku“ „Var farinn að krampa upp í öllum vöðvum líkamans“ Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Donnarumma skilinn eftir heima Kolbeinn tryggði stigin þrjú Uppgjörið: FH - ÍA 3-2 | Ótrúleg endurkoma heimamanna í Kaplakrika Uppgjörið: KR - Afturelding 2-1 | Mosfellingar í fallsæti eftir tap í Vesturbænum Tap setur Ísland í erfiða stöðu Spánn skiptir þjálfaranum út Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Fengu loksins leyfi til að spila spænskan deildarleik í Miami Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Klappað fyrir fyrstu konunni sem dæmdi í MLB Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar „Þá sér maður að það brestur margur og klökknar“ Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Vilja dæma skíðastökkvarana í bann vegna saumaskandalsins Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Heimi fannst Arnar byrja of bratt með Ísland Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Sjáðu dramatísku sigurmörkin og Stjörnumenn skella Víkingum Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Viðbeinsbrotnaði þegar hann fagnaði sigri í Nascar Mun Jake Paul mæta Anthony Joshua í hringnum? Sjá meira
Uppgjörið: KR - Afturelding 2-1 | Mosfellingar í fallsæti eftir tap í Vesturbænum Íslenski boltinn
Uppgjörið: KR - Afturelding 2-1 | Mosfellingar í fallsæti eftir tap í Vesturbænum Íslenski boltinn