Sport

Ólafur Stefánsson sá eini

Nú er ljóst hvaða íþróttamenn og konur skipa tíu efstu sætin í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á Íþróttamanni ársins fyrir árið 2004. Að þessu sinni eru þrjár konur á listanum og fimm þeirra sem tilnefnd eru koma úr einstaklingsíþróttum. Knattspyrnan á flesta fulltrúa á listanum, þrjá talsins. Einnig eru tveir kylfingar á listanum að þessu sinni en tilkynnt verður um úrslit kjörsins í hófi 29. desember næstkomandi. Handknattleiksmaðurinn Ólafur Stefánsson var kjörinn íþróttamaður ársins í fyrra annað árið í röð og hann er meðal tíu efstu í ár eins og bróðir hans, körfuknattleiksmaðurinn Jón Arnór Stefánsson, sem spilar með Dynamo St. Pétursborg í Rússlandi. Ólafur er að þessu sinni eini íþróttamaðurinn á listanum sem hefur hlotið þennan mesta heiður íslensk íþróttamanns hér á landi. Frjálsíþróttakonan Þórey Edda Elísdóttir og fimleikamaðurinn Rúnar Alexandersson stóðu sig frábærlega á Ólympíuleikunum í Aþenu og eru að sjálfsögðu bæði meðal þeirra tíu efstu. Þórey Edda tvíbætti Norðurlandametið á árinu og kórónaði árið með því að ná fimmta sætinu á Ólympíuleikunum þar sem Rúnar komst í úrslit á bogahesti og endaði í sjöunda sæti. Tveir kylfingar eru að þessu sinni á meðal fremsta íþróttafólks ársins; Ólöf María Jónsdóttir varð fyrsti íslenski kylfinguinn til þess að tryggja sig inn á evrópsku mótaröðina og Birgi Leif Hafþórsson vantaði aðeins eitt högg til að komast inn. Bæði unnu þau Íslandsmótið hér heima. Sundkonan Kristín Rós Hákonardóttir er á listanum en hún var á dögunum kjörin Íþróttakona ársins hjá fötluðum tíunda árið í röð eftir glæsileg afrek á Ólympíuleikum fatlaðra í ár. Þrír knattspyrnumenn komast einnig inn á listann. Landsliðsfyrirliðinn og lykilmaður í Chelsea, einu af bestu félagsliðum heims, Eiður Smári Guðjohnsen, er að sjálfsögðu með en hann varð í öðru sæti í valinu í fyrra. Þá er félagi hans í landsliðinu, Hermann Hreiðarsson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Charlton, á listanum og að lokum er tilnefndur Heimir Guðjónsson, besti leikmaður Íslandsmótsins í ár, sem leiddi FH-inga til síns fyrsta Íslandsmeistaratitils. Hvorki sundmaðurinn Örn Arnarson né frjálsíþróttamaðurinn Jón Arnar Magnússon eru meðal tíu efstu að þessu sinni en þeir hafa verið fastagestir á listanum undanfarin ár og Örn hafði sem dæmi verið meðal þeirra tíu efstu sex síðustu ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×