Spá fyrir um jarðskjálfta 6. desember 2004 00:01
Heita vatnið gæti gefið vísbendingar um yfirvofandi jarðskjálfta. Rannsóknir vísindamanna við norræna eldfjallasetrið benda til þess að efnainnihald heits vatns úr borholum breytist áður en jarðskjálftar ríða yfir. Frá þessu er greint í grein, sem birtist í nýjasta tölublaði vísindatímaritsins Geology. Hópur íslenskra og erlendra vísindamanna við norræna eldfjallasetrið fylgdust með efnainnihaldi heits vatns sem dælt var upp af fimmtán hundruð metra dýpi við Húsavík. Í ljós kom að efnajafnvægið í vatninu breyttist nokkrum vikum áður en skjálfti reið þar yfir. Tíu vikum fyrir skjálfta sem varð í september árið 2002 jókst magn króms og járns í vatninu stórlega, fimm vikum síðar jókst magn mangans, hálfum mánuði fyrir skjálftann mældist mikið sink í vatninu og viku fyrr mikill kopar. Þessar niðurstöður gætu gefið vísindamönnum kost á að spá fyrir um og vara við jarðskjálftum mun betur en nú er. Fram til þessa hafa vísindamenn hingað til getað sagt miklar líkur á skjálfta innan áratugs, og svo hafa þeir getað varað við með nokkurra mínútna fyrirvara. En reynist heita vatnið gefa áreiðanlegar vísbendingar um skjálfta, gæti þetta gjörbreyst.
Fréttir Innlent Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira