Sýknaður af manndrápsákæru 28. ágúst 2004 00:01
Hálffimmtugur Þjóðverji hefur verið sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi í Héraðsdómi Reykjaness. Maðurinn ók bifreið sem valt út af veginum á leiðinni frá Kleifarvatni í átt að Hafnarfirði þann 24. júlí síðastliðinn með þeim afleiðingum að félagi hans sem sat í aftursæti bifreiðarinnar kastaðist út, hafnaði undir bifreiðinni og lést af áverkunum fimm dögum síðar. Maðurinn viðurkenndi fyrir dómi að hafa verið ölvaður undir stýri en ekki að hafa framið manndráp af gáleysi. Fimm Þjóðverjar voru í bílnum þegar slysið varð. Þeir voru allir ölvaðir og reyndist áfengismagn í blóði ákærða vera 0,89 prómill. Mennirnir báru upphaflega að hinn látni hefði ekið bifreiðinni en drógu þann framburð síðar tilbaka. Ákærði segist hafa ekið á um 40 kílómetra hraða frá Kleifarvatni. Skyndilega hefði bíllinn byrjað að renna til vinstri og hann smám saman misst stjórn á honum og hann oltið út af veginum. Töldu hann og einn félaga hans að vinstra framhjól bílsins hafi verið loftlaust eða loftlítið og að slysið mætti rekja til þess. Ennfremur hefði verið lausamöl á veginum. Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að líkur séu á að áfengisáhrif ákærða hafi skert ökuhæfni hans leiki vafi á að hann hafi sýnt af sér slíkt gáleysi við akstur að það nægi til sakfellingar. Hann er því sýknaður af þeirri ákæru en sakfelldur fyrir ölvun við akstur og dæmdur til greiðslu 60 þúsund króna sektar í ríkissjóð.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira