Kom ekki í endurskoðun í vor 5. ágúst 2004 00:01
Eigandi vörubílsins sem gjöreyðilagðist þegar hann fór fram af einbreiðri brú yfir Laxá í Laxárdal fékk mánaðarfrest til að láta gera við hemlunarbúnað eftir aðalskoðun. Það var í apríl en þegar slysið varð hafði ekki enn verið komið með bílinn í endurskoðun. Eigandi vörubílsins, Sigvaldi Arason, segir að ekkert sé til í því að bíllinn hafi verið bremsulaus þegar bílstjóri hans beygði honum út af einbreiðri brú til að forðast árekstur og steyptist tíu metra niður í stórgrýti. Hins vegar fengust þær upplýsingar hjá ökutækjaskrá að þó nokkrar athugasemdir hefðu verið gerðar við ástand bílsins þegar hann kom þangað í skoðun þann 19. apríl á þessu ári. Meðal annars var gerð athugasemd við hemlunargetu og stýrisenda. Eigandinn fékk frest til 19. maí til að koma með hann í endurskoðun. Hann hafði ekki gert það fyrir slysið. Sigvaldi Arason vildi ekkert tjá sig um málið þegar fréttastofa hafði samband við hann í dag en sagði bílinn hafa verið í toppstandi og hefði hann gögn því til staðfestingar. Þegar hann var spurður nánar um hvar eða hvenær hefði verið skipt um bremsurnar sagði hann að yfirlýsing yrði gefin um málið í næstu viku. Í frétt Fréttablaðsins segir að reynt hafi verið að fara með bílinn í skoðun fyrir stuttu en verið vísað frá vegna annríkis og sagt að koma eftir tvær vikur. Ökumaður vörubílsins, sem á ótrúlegan hátt slapp lítið meiddur úr slysinu, staðhæfir að bremsurnar hafi verið nýjar í bílnum og hafi hann sjálfur horft á þegar skipt var um þær. Lögreglan í Búðardal, sem hefur með rannsókn málsins að gera, segir að enginn grunur sé um að um annað en slys sé að ræða og sé gengið út frá því við rannsóknina. Vörubíllinn var fjarlægður strax eftir slysið og fluttur til Borgarness. Lögreglan býst við að rannsókn málsins ljúki fljótlega í næstu viku. Frumherji í Borgarnesi sér um rannsókn á bílnum. Hún var þó ekki hafin í dag og ekki fékkst uppgefið hve lengi sú rannsókn myndi vara..
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira