Enski boltinn til Skjás eins 26. júní 2004 00:01
Útsendingar á enska boltanum hefjast 14. ágúst á Skjá einum. Gengið hefur verið frá öllum samningum um útsendingarétt, að sögn Magnúsar Ragnarssonar, sjónvarpsstjóra, og verða þeir formlega undirritaðir í Englandi á þriðjudag. Sjónvarpsstöðin Skjár einn stendur ein að þeim samningi sem gerður hefur verið við ensku úrvalsdeildina um útsendingar á leikjum úr deildinni, en þær verða ekki boðnar út að nýju, fyrr en að þremur árum liðnum. Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins, segir að langri samningalotu sé loks lokið með bindandi samningi og búið sé að ganga frá og fá samþykktar allar áætlanir sem snúi að framkvæmd útsendinganna, en samningurinn verður undirritaður formlega í Englandi á þriðjudag. Magnús vildi ekki upplýsa um það hvað sjónvarpsstöðin þurfti að greiða fyrir samninginn og sagði það vera viðskiptaleyndarmál, en líklegt er að kostnaðurinn sé ekki undir 200 milljónum króna. Þetta er í fyrsta skipti sem enska úrvalsdeildin semur beint við allar sjónvarpsstöðvar um útsendingarréttinn, og segir Magnús, að af þeim sökum hafi samningaferlið verið flókið og tafist gríðarlega, en hingað til hafa ákveðnir aðilar séð um alla samningagerð fyrir úrvalsdeildina og dreift efninu. Leikir í ensku úrvalsdeildinni hefjast 14. ágúst næstkomandi og þá hefjast einnig útsendingar frá boltanum á Skjá einum. Magnús segir að sýnt verði beint frá sex leikjum í hverri viku, og verið sé að vega og meta hugsanlegt samstarf við aðra fjölmiðla í tengslum við kynningarmál, og meðal annars það hvar mörkin verði sýnd. Ákveðið sé að hafa íslenska dagskrárgerð í kringum útsendingarnar, en Skjár einn velti því fyrir sér að láta ensku þulina lýsa minniháttar leikjum og viðburðum í tengslum við boltann. Hann segir þessi atriði ófrágengin enn sem komið er, en allt verði komið á hreint fyrir blaðamannafund sem boðaður verði í lok næstu viku.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira