Tryggvi hugsar sér til hreyfings 8. nóvember 2004 00:01 "
Það er alveg á tæru að ef þessi þjálfari verður áfram með liðið mun ég íhuga alvarlega að komast eitthvert annað," segir Tryggvi Guðmundsson, knattspyrnumaður með Örgryte í sænsku deildinni. Tryggvi var hetja liðs síns um helgina þegar hann skoraði sigurmark Örgryte á ögurstundu gegn Assyriska og tryggði þannig liðinu áframhaldandi setu í efstu deild í Svíþjóð. Ekki mátti tæpara standa því markið skoraði Tryggvi þegar tvær mínútur voru liðnar af uppbótartíma en jafntefli hefði þýtt að Örgryte, sem varð í fjórða sæti á þarsíðustu leiktíð, hefði fallið niður í 1. deild. "Það er ekkert launungarmál að ég er ekkert ánægður með stöðu mála og ég efast um að forsvarsmenn liðsins séu það heldur. Lið sem var meðal þeirra allra efstu áður en þessi þjálfari tók við hefur verið í fallbaráttu lengst af tímabilsins. Þetta skýrist mikið til í vikunni en þá verður fundað um stöðu mála innan félagsins en ég hef fullan hug á að skoða önnur tilboð ef ákveðið verður að þjálfarinn verði áfram. Ég veit af áhuga norskra liða og það myndi ég skoða alvarlega. Hins vegar viðurkenni ég að ákveðin heimþrá gerði vart við sig í sumar og ég held heim til Íslands fyrr en síðar." Þjálfarinn sem Tryggvi talar svo um tók við liði Örgryte fyrir þessa leiktíð. Kappinn er finnskur og náði aldrei tökum á liðinu þetta sumarið. Örgryte féll niður töfluna með svipuðum hraða og hlutabréf í Enron og vann aðeins sex leiki af alls 26. Liðið skoraði 24 mörk eða innan við eitt í leik en fékk á sig 35. "Það segir kannski allt sem segja þarf í þessum 26 leikjum sem liðið spilaði að í 22 þeirra var aldrei sama byrjunarlið. Slíkt hlýtur að fara illa í leikmenn enda verður sjálfstraustið aldrei mikið með því móti. Það sýndi sig svo berlega með stöðu liðsins í deildinni. Persónulega trúi ég ekki öðru en að hann verði látinn fara og þá er ég reiðubúinn að vera áfram enda á ég enn tvö ár eftir af samningi mínum." Þess má geta að sænska knattspyrnusambandið ákvað í gær að vegna bágs fjárhags liðs Örebro sem endaði í áttunda sæti Allsvenskan að dæma liðið niður um deild. Lið Assyriska sem Örgryte sigraði fer því upp í efstu deild í staðinn þrátt fyrir tapið.
Íþróttir Mest lesið Segir Eið Smára ekki fá það hrós sem hann á skilið Sport Þjálfari tilbúinn að hætta og tyrkneska þjóðin beðin afsökunar Fótbolti Forráðamenn PSG ósáttir við læknateymi landsliðsins Fótbolti Íbúð landsliðsmanns Úkraínu í rúst eftir sprengjuárás Rússa Fótbolti Áhorfandi sló leikmann og missti af ótrúlegri endurkomu Sport Onana græðir á skiptunum til Tyrklands Fótbolti „Maður er í þessu fyrir svona leiki“ Fótbolti Doncic náði allskonar tölfræðiáföngum í kvöld Sport „Tottenham Hotspur er ekki til sölu“ Enski boltinn „Ætlum að keyra inn í þetta“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu FHL sækja stig gegn Þrótti Tíu mánaða bann fyrir að taka lyf við hárlosi Onana græðir á skiptunum til Tyrklands Þjálfari tilbúinn að hætta og tyrkneska þjóðin beðin afsökunar „Ætlum að keyra inn í þetta“ „Tottenham Hotspur er ekki til sölu“ Áhorfandi sló leikmann og missti af ótrúlegri endurkomu Alcaraz tekur toppsætið af Sinner eftir sigur á Opna bandaríska „Maður er í þessu fyrir svona leiki“ Segir Eið Smára ekki fá það hrós sem hann á skilið Dagskráin í dag: Íslenska U21 landsliðið mætir Eistum Íbúð landsliðsmanns Úkraínu í rúst eftir sprengjuárás Rússa Forráðamenn PSG ósáttir við læknateymi landsliðsins Doncic náði allskonar tölfræðiáföngum í kvöld Víkingar á fleygiferð eftir EM pásuna Spánverjar og Belgar skoruðu sex Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Donni og félagar örugglega áfram í Evrópudeildinni Onana samþykkir skiptin til Tyrklands „Held að þetta séu auðveldustu leikirnir sem þú spilar“ Depay orðinn markahæstur í sögu Hollands Nýliðar KA/Þórs byrja með sigri Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Andrea tók sjötta sætið Uppgjörið: Þróttur - FHL 2-2 | Jafnt í Laugardalnum Langþráð hjá Melsungen Piastri sagt að hleypa Norris fram úr en Verstappen vann Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Ingibjörg fékk rautt í fyrsta leiknum með Freiburg Mega ekki sýna neikvæð viðbrögð í garð Trumps Sjá meira