Gæðablóð eða glæpamenn? 8. nóvember 2004 00:01
Áhugafólki um bifhjól og bifhjólaakstur er ekki skemmt yfir tíðum fregnum af aðgerðum yfirvalda gegn erlendum mótorhjólaklúbbum. Félögum í norrænu samtökunum Hog Riders var meinuð innganga í landið fyrir helgi og því borið við að þeir væru á sakaskrá og af þeim stafaði hætta. Sama var uppi á teningnum í desember þegar níu norskir Vítisenglar reyndu að komast inn í landið og enn árið 2002 þegar nítján dönskum Vítisenglum var snúið við í gættinni. Það fer fyrir brjóstið á heiðvirðu íslensku bifhjólafólki að það skuli tengt, beint og óbeint, við slíka erlenda hópa. Megin þorri þess hefur ekkert til saka unnið. Það hefur hins vegar brennandi áhuga á mótorhjólum og þykir fátt betra en að bruna eftir malbikinu og finna hestöflin krauma í klofinu. Það er þó ekki út í bláinn að harðsvíruð glæpasamtök á Norðurlöndunum séu tengd við Ísland og íslenska mótorhjólaklúbba. Liðsmenn þeirra hafa jú reynt að komast til landsins til að hitta Íslendinga sem eiga sér þá heitu ósk að fá inngöngu í erlendu klúbbana. Og þó íslenskir fylgismenn erlendu samtakanna þvertaki fyrir glæpastarfsemi erlendra vina sinna er það óumdeild skilgreining íslenskra yfirvalda og einmitt á þeim forsendum er þeim meinaður aðgangur. Nú um helgina öðlaðist vélhjólaklúbburinn Hrollur þann sess að verða reynslufélag innan Hog Riders. Næsta skref er svo full aðild. Hermt hefur verið að Fáfnir hafi hug á að fá sambærilega stöðu innan Vítisengla en það ferli er mun skemur á veg komið. Fyrsta skrefið er að gerast stuðningsaðilar, þá fylgisveinar og loks reynslufélag áður en aðild fæst. Góðir strákar í Hrollli Baldvin Jónsson er formaður Sniglanna, bifhjólasamtaka lýðveldisins. Hann segir umrædd mál skaða mótorhjólafólk og vildi heldur vera laus við svona uppákomur. "Mér finnst algjör óþarfi að hengja sig á erlenda mótorhjólaklúbba. Þeir sem það gera verða hvorki stærri né merkilegri fyrir vikið," segir Sniglaformaðurinn. Hann ítrekar að umræðan hafi neikvæð áhrif á ímynd bifhjólafólks og tekur skýrt fram að Sniglarnir standi ekki á bak við komur þessara manna, þar séu aðrir á ferðinni. "Við styðjum þetta allls ekki en getum auðvitað ekki bannað þetta." Baldvin segir óvíst hvað framtíðin beri í skauti sér nú þegar Hog Riders hafi skotið rótum á Íslandi en býst ekki við neinu misjöfnu, ekki í bráð í það minnsta. "Ég er ekki hræddur við þetta og ekki hræddur um að strákarnir sem gengu í Hog Riders um helgina eigi eftir að leiðast út í eitthvað misjafnt því það eru góðir strákar." Hann fullyrðir jafnframt að þess sé langt að bíða að hér muni íslenskur Vítisengill ganga um í fullum skrúða, "það verður allavega ekki næstu árin," segir Baldvin. Eftir því sem næst verður komist eru sextán klúbbar mótorhjólamanna starfræktir í landinu, misfjölmennir og misvirkir eins og gengur. Hrollur er fámennt félag með aðsetur við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði og hlaut um helgina reynsluaðild að Hog Riders. Haft er eftir Gunnari Hafþóri Eymarssyni Hrollsmanni í DV í gær að þeir séu fjölskyldumenn og mótorhjólin séu þeirra hobbí. Orðrétt segir hann einnig:"Við erum ekki þekktir fyrir neitt dóp og í þessum partíum sem við höfum farið í úti eru menn að drekka og ef það er eitthvað dóp í gangi er enginn að veifa því." Fáfnir er að sama skapi fámennur félagsskapur en höfuðstöðvarnar eru í Kaplahrauni í Hafnarfirði. Fáfnismenn hafa verið tengdir Vítisenglum og sagðir langa til að ganga í þau alræmdu samtök. Nafnkunnustu Fáfnismennirnir eru Jón Trausti Lúthersson, Brynjólfur Þór Jónsson og Sverrir Þór Einarsson. Haft hefur verið eftir Brynjólfi í Fréttablaðinu að Vítisenglar séu stór og virt samtök og lögleg þar sem þau starfi. Hann sagði það ekki trufla fyrirætlanir Fáfnismanna þó Vítisenglar væru bendlaðir við glæpi enda aldrei fallið dómur á sjálf samtökin. Einstakir félagsmenn hafa hinsvegar hlotið dóma og sumir þunga. Fáfnir starfaði framan af í Grindavík en fluttist á höfuðborgarsvæðið fyrir nokkru. Hinir Í Óskabörnum Óðins voru eitt sinn ungir og reiðir menn sem vildu ekki lúta stjórn annarra og stofnuðu því sitt eigið félag. Þeir hafa elst og reiðin runnið af þeim og lítið fer fyrir starfseminni. Óskabörn Óðins hafa útibú í Danmörku og helgast því af því að nokkrir félagsmenn fluttust utan og stofnuðu þar deild. DMFÍ stendur fyrir Drullumallarafélag Íslands og eru félagsmenn áhugasamir um torfæruakstur en eiga einnig götuhjól. Nokkur félög eru bundin við landsvæði og má þar nefna Erni á Suðurnesjum, Postula á Suðurlandi, Smaladrengi á Siglufirði og víðar á Norðurlandi og Rafta í Borgarfirði. Í Berserkjum eru menn sem allir eru að gera upp Harley Davidson mótorhjól og HOG er félagsskapur Harley eigenda og starfar í tengslum við Harley umboðið á Íslandi. Hvítabirnir er lausbeislaður félagsskapur en aðalfundur er haldinn einu sinni á ári og þá á Landsmóti Snigla. Er þess vandlega gætt að fundurinn standi ekki nema í eina klukkustund. Í Varúlfana fá þeir einir inngöngu sem lifa eftir 12 spora kerfinu og Vélhjólafélag Gamlingja er félagsskapur fólks á öllum aldri sem á gömul hjól. Engar upplýsingar fengust um starfsemi Mjölnis í Keflavík. Gunnar Hafþór Eymarsson, Hrollsmaður.MYND/PjeturBrynjólfur Þór Jónsson, Fáfnismaður.MYND/Teitur
Innlent Menning Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Fleiri fréttir Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Sjá meira