Árni útilokar lagasetningu 9. ágúst 2004 00:01 "
Stjórnvöld hafa engar fyrirætlanir um að grípa inn í kjaraviðræður Sjómannasambands Íslands og Landssambands íslenskra útvegsmanna. Þeir verða að leysa deiluna sjálfir," segir Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra. Hann segir það ekki skipta eins miklu máli nú og áður skili tekjur sjávarútvegsins sér ekki til þjóðarbúsins í einhverja mánuði. Árni segir ástæðuna vera að efnahagslífið hafi breyst. Velta á gengismarkaði sé miklu meiri en áður og gengi krónunnar ráðist af öðrum þáttum en árið 2001 þegar lög hafi verið sett á verkfall sjómanna. Allar ákvarðanir sjávarútvegsráðuneytisins hafi verið teknar með almannahagsmuni að leiðarljósi. Árni segir alrangt að útvegsmann hafi gengið á sinn fund og óskað eftir lögum á verkfall sjómanna. "Útvegsmenn hafa aldrei beðið í mín eyru að lög yrðu sett á verkfall sjómanna. Þvert á móti þá hafa þeir verið á móti því. Reyndar eins og sjómenn; þeir hafa ekki beðið um það heldur og verið á móti lagasetningu." Sævar Gunnarsson, formaður SSÍ, veit ekki hvort hann eigi að taka meira mark á orðum sjávarútvegsráðherra nú frekar en við síðustu kjaraviðræður."Ég sé ekki annað en hann sé kominn í sama farið og um árið og dragi dilk útvegsmanna." Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, tekur undir orð sjávarútvegsráðherra. "Kjaradeilurnar verða ekki leystar með lögum. Það höfum við alltaf sagt og það hefur ekkert breyst. " Sjómenn og útvegsmann sömdu síðast sín á milli árið 1995. Ekki miðaði áfram í kjaraviðræðum þeirra á fundi ríkissáttasemjara í gær. Næsti fundur verður á mánudag.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira