Hitamet slegin í dag? 9. ágúst 2004 00:01
Spáð er yfir tuttugu stiga hita víða um land í dag eftir að hlýtt loft tók að streyma inn á landið í nótt með þrumum og eldingum á Suðurlandi. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur býst allt eins við að ný hitamet verði slegin í dag. Hann segir að afskaplega heitt loft hafi borist til landsins en hins vegar sé sólskin alls ekki mikið. Einar segir hitafarið síðastliðna nótt með eindæmum og að einhver met hafi verið slegin, sérstaklega í tengslum við hitamet að nóttu. Hitinn fór yfir 20 stig á nokkrum stöðum á Suðurlandi og að sögn Einars er mjög athyglisvert að hitastigið fór upp í 18 stig á Stórhöfða klukkan 3 í nótt. Einnig hækkaði hitinn í Skaftafelli í alla nótt og var kominn upp í 23 stig klukkan 6 í morgun. Þar á sólin vitanlega engan þátt. Klukkan 10 var hitinn þar orðinn 25 stig. Einar segir líkur á því að hitinn hafi farið yfir 20 stig í Reykjavík sem aðeins hefur gerst þrisvar sinnum í ágústmánuði á síðustu öld. Hvað landið allt varðar segir Einar ekki vera tiltakanlega hlýtt, enn sem komið er, víðast hvar. Aðspurður hvaðan hlýja loftið komi segir Einar það koma að stofninum til úr suðaustri þar sem það hafi legið yfir Skandinavíu og Norður-Evrópu síðustu vikurnar. Inn í þetta blandast svo hlýtt loft úr leifum af fellibylnum Alex sem er kyrrstæður fyrir vestan Írland. Einar segir líkur á því að hlýindin vari mestalla vikuna og nái hámarki á þriðjudag eða miðvikudag. Hann á líka von á að léttara verði yfir hvað skýjafar varðar þegar líður á vikuna. Hægt er að hlusta á viðtal við Einar úr hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Myndin er frá Þingvöllum.
Fréttir Innlent Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Fleiri fréttir „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Sjá meira