NÝ PLATA FRÁ FRIÐRIKI KARLSSYNI 21. nóvember 2004 00:01
NÝ PLATA FRÁ FRIÐRIKI KARLSSYNI - VELLÍÐAN ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Í BLÁA LÓNINU LAUGARDAGINN 27. NÓVEMBER KL. 15:30 Aðgangur ókeypis. Einn farsælasti hljóðfæraleikari sem Íslendingar hafa átt sendir nú frá sér nýja plötu frá fyrirtækinu sínu sem er annað stærsta á sínu sviði. Skífan gefur plötuna út á Íslandi. Á milli þess að vinna að eigin plötufyrirtæki vinnur Friðrik með frægustu stjörnum heims og spilar í vinsælustu sjónvarpsþáttum Bretlands. Nýverið lauk hann við að spila tónlist í einni mestu stórmynd sem send hefur verið út frá Hollywood, Phantom of the Opera. Friðrik verður á Íslandi frá og með næsta fimmtudegi og leikur meðal annars á útgáfutónleikum í Bláa Lóninu laugardaginn 27. nóvember. NÝ PLATA Í SLÖKUNARSERÍUNNI Árið 1997 sendi Friðrik Karlsson frá sér plötuna River of Light en gripurinn geymdi slökunartónlist eftir kappann. Platan gekk vel og síðan þá hefur slökunarplata frá Frissa verið árlegur viðburður. Þetta er sú áttunda í röðinni sem kemur út á Íslandi er Friðrik er einnig stórtækur í útgáfu slökunarplatna í Englandi þar sem hann býr nú og plötur hans seljast þar í tugþúsundum eintaka. FRIÐRIK KARLSSON Friðrik Karlsson hefur spilað á gítar frá því hann var sextán ára. Hann hefur lokið námi í klassískum gítarleik og rokkgítarleik frá FÍH. Hann náði fyrst athygli heimsins þegar hann sló í gegn með hljómsveit sinni Mezzoforté árið 1983 með laginu Garden Party sem náði inná top 10 í Bretlandi,( Mezzoforté hefur alls tekið 11 hljóðversplötur ). Árið 1996 flutti Friðrik til Bretlands en á þeim tíma hafði Friðrik ferðast fram og til baka. Lék í söngleikjum á West í miðri viku en flaug heim um helgar að spila með Stjórninni sem þá var við völd í Þjóðleikhúskjallaranum og troðfyllti þar um hverja helgi. Friðrik ákvað hinsvegar að reyna fyrir sér að fullum krafti í London. Síðan þá hefur Friðrik verið umsvifamikill í tónlistarlífi London og af flestum talin eftirsóttasti hljóðversgítarleikarinn í breskri tónlist. Síðustu ár hefur hann spilað inná kvikmyndatónlist í myndum eins og Evita og Hercules. Hann hefur verið fyrsti gítarleikari á plötum og sýningum eins og Jesus Christ Superstar, Saturday Night Fever, Whistle Down the Wind og the Beautiful Game eftir Andrew Lloyd Webber. Gárungar hafa oft kallað Friðik hirðgítarleikara Andrew Lloyd Webber enda er Andrew þekktur fyrir að sleppa ekki takinu af góðu fólki og gerir margt til þess að ná í þá bestu á sínu sviði. EFTIRSÓTTASTI GÍTARLEIKARI BRETLANDS Friðrik Karlsson hefur líka fylgt heimsfrægum stjörnum og þar eru engin smá nöfn á ferðinni. Á síðustu misserum hefur Friðrik spilað með Madonnu, Jose Carreras, Jamoriquay, Martine MCcution, Marty Pellow (Wet Wet Wet), Andy Williams, David Cassidy, Tom Jones og nú síðast Ronan Keating og Cat Stevens. Hljóðversferill Friðriks er nánast endalaus og telur vinsælustu flytjendurna í bresku tónlistarlífi. Þar má finna Boyzone, Westlife, S-Club7, Jose Carreras, Atomic Kitten, Emma Bunton, Hear Say, Ronan Keating, Blue, Sheryl Crow, Gareth Gates, Will Young, Vinnie Jones, Russel Watson, Otown, Michelle (nýja U.K. pop idolið) Samanda Mumba, Clay Aiken, Kelly Clarkson, Leann Rhimes og Denice Van Outen. Í STÓRMYNDINNI PHANTOM OF THE OPERA OG X FACTOR Í haust hefur Friðik verið á fullu við að ljúka við tónlist fyrir stórmyndina Phantom of the Opera ásamt hinum nafntogaða upptökustjóra Nigel Wright. En myndinni er spáð miklum árangri og verður frumsýnd um allan heim þessi jól. Á sama tíma hefur Friðrik spilað á gítar í nýjum sjónvarpsþætti Simon Cowell sem flestar þekkja úr Idol þáttunum. Þar er á ferðinni vinsælasti sjónvarpsþáttur Bretlands um þessar mundir, kallast X-Factor, og hefur algjörlega leyst Pop Idol af hólmi. MÖRGUM SINNUM Á TOPPNUM Í HAUST HEIMA OG Í BRETLANDI Vinsælasta hljómplatan í Bretlandi er Il Divo en þar eru á ferðinni fjórir ungir tenórar. Friðrik lék að sjálfsögðu á alla gítarana. Eins var það í fréttum um allan heim um daginn þegar Friðrik lék með Cat Stevens og Ronan Keating í endurgerð á laginu Father and Son og fastlega er reiknað með því að það lag fari beint í fyrsta sæti breska vinsældarlistans. Friðrik hefur heldur ekki séð af tíma sínum því í sumar og haust aðstoðað hann Nylon flokkinn íslenska við upptökur í Bretlandi með Nigel Wright. Sú afurð hefur líka náð topp sæti íslenska Tónlistans og situr en í toppsætum hans. ANNAÐ STÆRSTA FYRIRTÆKI BRETLANDS Í SLÖKUNARTÓNLIST Á sama tíma byggir Friðrik upp fyrirtæki í Bretlandi í kringum seríuna The Feel Good Collection. Fyrirtækið er annað stærsta fyrirtækið á sínu sviði í Bretlandi með dreifingarsamninga í 12 löndum og fer ört stækkandi.
Menning Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Sjá meira