Innlent

Áhafnaskipti við Svalbarða

Ný tuttugu og sex manna áhöfn fór um borð í Samherjatogarann Vilhelm Þorsteinsson við Svalbarða í síðustu viku. Leiguflugvél frá Flugfélagi Íslands flaug með áhöfnina frá Akureyri til Longerbyen á Svalbarða og sparaðist með því átta hundruð mílna sigling til Íslands. Flugið tók fimm tíma með viðkomu í Tromsö í Noregi. Vilhelm Þorsteinsson hefur verið við síldveiðar í lögsögu Svalbarða frá miðjum júní og hafa siglingar verið sparaðar til Íslands með því að landa aflanum beint í flutningaskip úti á sjó.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×