Innlent

Fannst við rætur Heklu

Belgísk kona sem saknað hafði verið frá því á þriðjudagskvöld fannst heil á húfi snemma í gærmorgun við rætur Heklu. Konan ætlaði á fjallið ásamt ferðafélaga sínum, en ákvað að bíða eftir honum fyrir neðan efsta hluta fjallsins. Þegar ferðafélaginn kom niður fann hann ekki konuna og hafði því samband við löggæsluyfirvöld. Klukkan tíu í fyrrakvöld voru 30 björgunarsveitarmenn með leitarhunda sendir á vettvang, sem og ein flugvél. Eftir átta klukkustunda leit fannst konan heil á húfi við rætur fjallsins. Hún hafði verið á göngu alla nóttina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×