Innlent

Samþykkt að hækka útsvar

Meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að hækka útsvar upp í rúm 13 prósent og að hækka fasteignaskatt líka. Sjálfstæðismenn greiddu atkvæði gegn báðum hækkununum og fulltrúi Frjálslynda flokksins gegn hækkun fasteignaskatts. Steinunn Valdís Óskarsdóttir var formlega kosin borgarstjóri á fundinum, frá og með næstu mánaðamótum, með atkvæðum R listans, en aðrir borgarfulltrúar skiluðu auðu. Þetta var síðasti borgarstjórnarfundur Þórólfs Árnasonar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×