Sprengjueyðingar umfangsmeiri 10. ágúst 2004 00:01
Sprengjueyðing er að verða sífellt umfangsmeira verkefni hjá Landhelgisgæslunni og er hún orðin mjög vel tækjum búin, með sprengjueyðingavélmenni og fleira. Þá er aukin áhersla á varnir gegn hryðjuverkum en síðar í mánuðinum verður hér á landi umfangsmesta æfingin til þessa í þeim efnum. Yfirmaður sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar segir búnað stofnunarinnar til leitar og eyðingar á sprengjum á við það besta sem tíðkast í heiminum í dag og þekking starfsmanna gríðarlega góð. Meðal annars hafa þeir yfir að ráða vélmenni sem notað er til að komast að sprengjum, skoða þær og gera óvirkar. Sem dæmi er hægt að tengja við það röntgentæki sem gegnumlýsir sprengjur. Þá er vatn gjarnan notað til að eyða sprengjum en því er sprautað af ógnarkrafti þannig að sprengjurnar og allt inni í þeim tætast í sundur. Einnig er Landhelgisgæslan búin að fá búnað sem finnur sprengjur sem eru undir yfirborði jarðar þannig að hún er mjög vel í stakk búin til að sinna þessum verkefnum segir Gylfi Geirsson, yfirmaður sprengjudeildar Gæslunnar. Þar fyrir utan hefur Landhelgisgæslan yfir að ráða vel þjálfuðum mannskap. Eins og Stöð 2 greindi frá í gær hefur Landhelgisgæslan fjarlægt mörg hundruð virkar sprengjur af útivistarsvæði á Vogaheiði en þar var skotsvæði Bandaríkjahers á árum áður. Slíkum verkefnum fer fjölgandi hjá Landhelgisgæslunni að sögn Gylfa. Síðar í þessum mánuði verður haldin fjölþjóðleg æfing hér á landi, þar sem viðbrögð og varnir gegn hryðjuverkum verða æfð. Auk Íslendinga, taka Bandaríkjamenn, Danir, Norðmenn og Bretar þátt. Þetta er þriðja árið í röð sem slík æfing er haldin hér á landi en þetta verður sú lang umfangsmesta hingað til.
Fréttir Innlent Mest lesið Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Hleypti líklega óvart úr Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent Pútín lætur sér fátt um finnast Erlent Fleiri fréttir Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Sjá meira