Brúin opnuð fyrir starfsmönnum 10. ágúst 2004 00:01
Búið er að opna brúna yfir Jöklu, sem laskaðist í vatnavöxtum í síðustu viku, fyrir farartækjum verktakanna við Kárahnjúka en ekki almenningi. Steypuvinna við undirstöður Kárahnjúkastíflu hefst væntanlega í dag eftir nokkurra daga hlé. Búið er að dæla öllu vatni, sem lekið hefur í gegnum varnargarð ofan við stíflustæðið og niður á vinnusvæðið, í burtu. Vinna við gerð aðalstíflunnar var þegar orðin á eftir áætlun þegar vatnavextirnir hófust með öllum sínum truflunum þannig að verkið hefur enn tafist um hátt í viku. Þá er nú lokið vinnu við að hækka varnargarðinn ofan við stíflustæðið, a.m.k. að sinni, og er hann nú orðinn sautján metrum hærri en gert var ráð fyrir að hann þyrfti að vera. Talsvert vatn var í Jöklu síðdegis í gær en yfirborðið var þó fimm metrum lægra en í flóðunum í síðustu viku. Nú laust fyrir hádegið var yfirborðið ívið lægra en á sama tíma þá daga sem flóðin urðu undir kvöld í síðustu viku. Á það er að líta að ekki hafði verið nærri eins hlýtt á jöklinum á næturnar eins og nú þannig að gusa gæti komið í ána þegar líður á daginn og búa menn sig undir það. Veðurstofan spáir áframhaldandi hlýindum og því mikilli bráðnun á jöklasvæðum. Vatnasvæði Jöklu er 3.700 kílómetrar og þar af eru 900 kílómetrar jöklar. Aðeins Jökulsá á Fjöllum, Skaftá og Þjórsá hafa stærri jöklasvæði á vatnasvæðum sínum. Talsvert mikið rennsli er í öllum þeim ám samkvæmt mælingum Orkustofnunar en ekki er þó hægt að tala um flóð í þeim heldur fremur mikið sumarrennsli.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Sjá meira