Innlent

Stutt við skógrækt

Jón Loftsson skógræktarstjóri og Sigurður E. Ragnarsson, framkvæmdastjóri byggingasviðs BYKO, hafa skrifað undir samning um fjárstuðning BYKO við viðarnýtingarnefnd skógræktargeirans. Stuðningur BYKO nemur 1,5 milljónum króna á ári og er ætlaður til fræðslu, vöruþróunar og markaðssetningar skógarafurða. Sjö sitja í viðarnýtingarnefnd, fulltrúar allra skógræktenda og tilnefnir BYKO tvo nefndarmenn, þar á meðal formann. Nefndinni er ætlað að leita leiða til að þróa, framleiða og markaðssetja vörur úr skógarafurðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×