Búið að gera við brúna 20. október 2004 00:01
Vegagerðarmenn gerðu í morgun við brúna yfir Núpsvötn á hringveginum austan við Kirkjubæjarklaustur, eftir að hluti af nýrri málmklæðningu á brúargólfinu flettist upp í veðurofsanum í gærmorgun. Þjóðvegi eitt var þá lokað á milli Skeiðarár og Lómagnúps og var ekki opnaður fyrr en upp úr klukkan tíu í morgun. Vegagerðarmenn gátu ekkert aðhafst í gær vegna veðurofsans. Jafnframt eru vegagerðarmenn að huga að vegaskemmdum á Fróðárheiði á Snæfellsnesi þar sem malbik flettist af veginum á að minnsta kosti hundrað metra kafla. Sá kafli er vel fær þótt hann verði ekki malbikaður strax. Glæður loguðu í heyi að bænum Knerri á Snæfellsnesi alveg fram á kvöld í gærkvöldi, eftir að þar kviknaði í í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að á milli 600 og 700 fjár drápust þegar fjárhúsin brunnu. Talið er að þetta sé eitthvert mesta búfjártjón hjá einum bónda í Íslandssögunni. Eins og fram er komið var bóndinn illa tryggður fyrir tjóninu, sem talið er hlaupa á tugum milljóna króna. Eldsupptök eru enn ókunn, en eldurinn virðist hafa kviknað í hlöðu við fjárhúsin. Rannsóknarmenn eru nú á vettvangi. Betur fór austur á landi þegar fjölmennu liði björgunarsveitarmanna tókst að bjarga tugum ef ekki hundruðum lamba og kinda, sem voru hætt komin í Eiðaþinghá á Fljótsdalshéraði í gær. Þegar björgunarmenn komu á vettvang við erfiðar aðstæður, voru margar kindur við það að örmagnast þar sem blautur snjór hafði sest í ullina og hálf frosið, þannig að kindurnar voru að sligast og örmagnast. Þá munaði minnstu að þær færu að troðast undir við girðingar, þegar þær voru að hopa undan illviðrinu, en með harðfygli tókst a koma fénu í hús.
Fréttir Innlent Mest lesið Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Fleiri fréttir Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Sjá meira