Innlent

Logaði í heyi fram á kvöld

Glæður loguðu í heyi að bænum Knerri á Snæfellsnesi alveg fram á kvöld í gærkvöldi, efitr að þar kviknaði í í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að á milli 600 og 700 fjár drápust þegar fjárhúsin brunnu. Talið er að þetta sé eitthvert mesta búfjártjón hjá einum bónda í Íslandssögunni. Eins og fram er komið var bóndinn illa tryggður fyrir tjóninu, sem talið er hlaupa á tugum milljóna króna. Eldsupptök eru enn ókunn, en eldurinn virðist hafa kviknað í hlöðu við fjárhúsin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×