Innlent

5000 manns til Eyja

Um 5000 manns stefna á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Að minnsta kosti 16 skipulagðar hátíðir verða haldnar víða um land. Allt stefnir í farþegamet hjá ferjunni Herjólfi um verslunarmannahelgina en þrjár auka næturferðir verða farnar fyrir og eftir helgi. Frá miðvikudegi til laugardags búast menn við að um 3500 manns verði fluttir sjóleiðis til Eyja, en ferjan tekur um 524 í hverri ferð. Fullbókað er til Eyja á fimmtudegi og föstudegi og frá Eyjum á mánudegi og þriðjudegi. Flugfélag Vestmannaeyja flýgur frá Bakka í Landeyjum. Þar búast menn við að flytja um 1000 manns milli lands og Eyja. Flugfélag Íslands flýgur einnig nokkrar ferðir um helgina og búist er við að um 600 manns fljúgi til Eyja með því. Í það minnsta sextán útihátíðir verða haldnar víða um land um verslunarmannahelgina. Á Akureyri er haldin, Ein með öllu. Síldarævintýri verður haldið á Siglufirði og Kántríhátíð á Skagaströnd. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Sauðárkróki en mótið er haldið fyrir börn og unglinga á aldrinum ellefu til átján ára. Á austurlandi eru tvær hátíðir. Neistaflug á Neskaupsstað og Álfaborgarsjens 2004 á Borgarfirði Eystri. Mikið er um að vera á sunnanverðu landinu. Fjölskylduhátið verður haldin í Galtalæk að venju að og kristilegt fjölskyldumót í Hlíðardalsskóla í Ölfusi. Sólheimar í Grímsnesi munu standa fyrir sögukynningu og staðarskoðun auk þess sem haldið verður ball. Bænastundir og biblíufræðsla verða að kirkjulækjarkoti á svokölluðu Kotmóti. Grillhátíð og fleira verður haldið í Úthlið í Biskupstungum og Klausturlíf á Kirkjubæjarklaustri. Sæludagar verða í Vatnaskógi á vegum KFUM. Fyrir þá Reykvíkinga sem ekki vilja eða geta farið úr bænum verður haldinn Innipúki í Iðnó í miðbæ Reykjavíkur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×