Sport

Hvað vill hann konunni, Kobe?

Ásakanir Kobe Bryant á hendur samherja sínum, Karl Malone hjá Los Angeles Lakers í NBA-körfuboltanum, hafa verið á allra vörum vestur í Bandaríkjunum síðustu daga. Þar eru menn missáttir við ummæli Kobe og telja hann vera að skjóta sig illilega í fótinn með að fara með málið í fjölmiðla. Deion Sanders, leikmaður Baltimore Ravens í ameríska fótboltanum, varð æfur þegar hann heyrði Kobe koma með málið fram í fjölmiðla. "Hann er að brjóta allt sem heitir vinátta milli leikmanna og bræðralag þeirra sem leika í deildinni," sagði Sanders, sótillur. "Það að einhver geti horft framan í þennan mann á ný í búningsherberginu er mér gjörsamlega óskiljanlegt." Sanders, sem er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum, lét allt flakka og talaði m.a. beint til Kobe. "Það er ekki bara að þitt eigið hús er skítugt, varst staðinn að hjúskaparbroti í fyrra, heldur ertu að koma Karl Malone í erfiða stöðu heima fyrir vegna ásakana þinna. Það er ótrúlegt að menn hafi prentað þessa vitleysu." Sanders er ekki einn um að senda Bryant tóninn því Malone kallaði Kobe "leikara í eigin sápuóperu" og Ray Allen, leikmaður Seattle Supersonics, sagði að Kobe væri "eigingjarn leikmaður". Þá fóru Shaquille O´Neal og Phil Jackson ekki leynt með plammeringar sínar í garð Kobe. Vanessa Bryant, eiginkona Kobe, sagði honum að Malone hefði sagt óviðeigandi hluti við sig á leik Los Angeles Lakers og Milwaukee Bucks í Staples Center 23. nóvember sl. Vanessa bauð Malone að sitja hjá sér í seinni hálfleik leiksins. Malone, sem var íklæddur kúrekastígvélum og kúrekahatti, vatt sér að Vanessu og faðmaði hana að sér. "Hvað ætlar þú nú að veiða?" spurði Vanessa Malone. "Litlar mexíkóskar stelpur," svaraði Malone. Kobe á að hafa sturlast og sagst ætla að "stúta honum" ef hann myndi hætta sér nálægt Vanessu aftur. "Malone er þaulreyndur náungi og er gamall herramaður," hélt Deion Sanders áfram. "Hvað ætti hann að vilja konunni þinni? Í alvöru. Verum hreinskilnir hérna. Hvað vill Karl konunni þinni? Hann á dóttur sem er jafngömul Vanessu. Það verður að segjast að þetta er fáránlegt," sagði Sanders. Sanders sagði að svona væri ekki liðið meðal leikmanna. "Þið verðið að skilja að okkur hryggir við að heyra svona bull eins og það sem kom út úr munninum á Kobe. Við getum ekki sætt okkur við að hann brjóti þessar reglur."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×