Hvað vill hann konunni, Kobe? 16. desember 2004 00:01
Ásakanir Kobe Bryant á hendur samherja sínum, Karl Malone hjá Los Angeles Lakers í NBA-körfuboltanum, hafa verið á allra vörum vestur í Bandaríkjunum síðustu daga. Þar eru menn missáttir við ummæli Kobe og telja hann vera að skjóta sig illilega í fótinn með að fara með málið í fjölmiðla. Deion Sanders, leikmaður Baltimore Ravens í ameríska fótboltanum, varð æfur þegar hann heyrði Kobe koma með málið fram í fjölmiðla. "Hann er að brjóta allt sem heitir vinátta milli leikmanna og bræðralag þeirra sem leika í deildinni," sagði Sanders, sótillur. "Það að einhver geti horft framan í þennan mann á ný í búningsherberginu er mér gjörsamlega óskiljanlegt." Sanders, sem er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum, lét allt flakka og talaði m.a. beint til Kobe. "Það er ekki bara að þitt eigið hús er skítugt, varst staðinn að hjúskaparbroti í fyrra, heldur ertu að koma Karl Malone í erfiða stöðu heima fyrir vegna ásakana þinna. Það er ótrúlegt að menn hafi prentað þessa vitleysu." Sanders er ekki einn um að senda Bryant tóninn því Malone kallaði Kobe "leikara í eigin sápuóperu" og Ray Allen, leikmaður Seattle Supersonics, sagði að Kobe væri "eigingjarn leikmaður". Þá fóru Shaquille O´Neal og Phil Jackson ekki leynt með plammeringar sínar í garð Kobe. Vanessa Bryant, eiginkona Kobe, sagði honum að Malone hefði sagt óviðeigandi hluti við sig á leik Los Angeles Lakers og Milwaukee Bucks í Staples Center 23. nóvember sl. Vanessa bauð Malone að sitja hjá sér í seinni hálfleik leiksins. Malone, sem var íklæddur kúrekastígvélum og kúrekahatti, vatt sér að Vanessu og faðmaði hana að sér. "Hvað ætlar þú nú að veiða?" spurði Vanessa Malone. "Litlar mexíkóskar stelpur," svaraði Malone. Kobe á að hafa sturlast og sagst ætla að "stúta honum" ef hann myndi hætta sér nálægt Vanessu aftur. "Malone er þaulreyndur náungi og er gamall herramaður," hélt Deion Sanders áfram. "Hvað ætti hann að vilja konunni þinni? Í alvöru. Verum hreinskilnir hérna. Hvað vill Karl konunni þinni? Hann á dóttur sem er jafngömul Vanessu. Það verður að segjast að þetta er fáránlegt," sagði Sanders. Sanders sagði að svona væri ekki liðið meðal leikmanna. "Þið verðið að skilja að okkur hryggir við að heyra svona bull eins og það sem kom út úr munninum á Kobe. Við getum ekki sætt okkur við að hann brjóti þessar reglur."
Íþróttir Mest lesið Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Körfubolti Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Handbolti Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Enski boltinn Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Enski boltinn Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Fótbolti Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Enski boltinn Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Handbolti Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Íslenski boltinn Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar: Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Orri áfram heitur á Spáni Skoruðu eftir 15 sekúndur og Þórir fékk engu breytt Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Landsliðstríóið í úrslit um þýska titilinn Lið Benónýs í góðri stöðu eftir dramatískt sigurmark Litli bróðir ætlar líka að verða meistari Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Skjöldur á loft hjá Glódísi og Bayern Munchen Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Birta fallin með Genoa eftir tap í Íslendingaslag Sjáðu markið: Róbert Frosti hetja GAIS Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Ísak Snær aftur upp í efstu deild með Lyngby Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Freyr getur unnið sinn fyrsta titil með Brann í dag: „Yrði stórkostlegt“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar hefst Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum „Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Sjá meira