Tæmdi sjóði umhverfisráðuneytisins 15. ágúst 2004 00:01
Unnið er að endurbótum á bryggjunni í Drangey á Skagafirði. Drangeyjarjarlinn, Jón Eiríksson, segist hafa tæmt sjóði umhverfisráðuneytisins en þaðan fékk hann 100 þúsund króna styrk til verksins. Bryggjan í Drangey laskaðist í óveðri síðastliðinn vetur þegar hafrótið náði að brjóta bryggjuna sjálfa og landganginn. Hópur manna undir forystu Jóns Eiríkssonar hafa ráðist í að steypa landganginn á nýjan leik, en steypuvinnan er með heldur óhefðbundnu sniði. Sement og möl þarf að flytja með bát til eyjarinnar, því er svo mokað upp og hrært á staðnum. Aðspurður hvort þasð sé ekki óðs manns æði af manni á áttræðisaldri að standa í slíkum framkvæmdum segir Jón það að sjálfsögðu vera svo, en þeir sem vinni með honum skemmti sér sæmilega - og hann sjálfur reyndar líka. Jón segir „Magnús vin sinn“ hjá umhverfisráðuneytinu hafa tæmt kassa ráðuneytisins með því að gefa vinnuflokknum 100 þúsund króna styrk, og hann segir að hann ætti að duga fyrir efniskostnaði. Kostnaðurinn sé reyndar bara smápeningur, alla vega miðað við andlitslyftingu á konu sem kosti yfir fimm milljónir að sögn Drangeyjarjarlsins. Jón hefur sigið í Drangey í hálfa öld og ferjað fólk til eyjarinnar síðustu ár. Hann segist ekki hafa orðið var við aukinn fjölda erlendra ferðamanna - hins vegar séu Íslendingar enn duglegir að heimsækja Drangey. Þeir hafi greinilega uppgötvað að þangað sé gott að koma.
Fréttir Innlent Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Sjá meira