Minni þreifingar í Evrópumálum 15. ágúst 2004 00:01
Ekki má búast við jafn ítarlegri umfjöllun um Evrópumál innan utanríkisráðuneytisins og áður þegar Davíð Oddson verður utanríkisráðherra, að mati Baldurs Þórhallssonar, dósents í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Baldur segist ekki vænta breytinga á utanríkisstefnunni enda sé stjórnarstefnan sú sama og áður en áherslur geta orðið aðrar. "Halldór hefur kannað stöðu Íslands í Evrópu og hvaða kostir myndu bjóðast ef sótt yrði um aðild að Evrópusambandinu. Ég býst ekki við jafn ítarlegri umfjöllun um Evrópumál undir forystu Davíðs." Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, telur að engar áherslubreytingar verði á utanríkismálum undir stjórn Davíðs. "Ég tel að Davíð verði jafn ötull að viða að sér upplýsingum um Evrópusambandið og Halldór og muni fylgjast náið með Evrópuþróuninni, enda er það mjög mikilvægt." Hannes og Baldur eru sammála um að það hafi verið rökrétt að Davíð færi í utanríkisráðuneytið. "Það stendur næst forsætisráðuneytinu. Hefði hann farið í annað ráðuneyti, þá hefði það verið mjög sérstakt," segir Baldur. Hannes Hólmsteinn segir mörg fordæmi þess að fyrrverandi forsætisráðherra verði utanríkisráðherra, til dæmis hafi Ólafur Jóhannesson verið utanríkisráðherra í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen eftir að hafa setið í forsæti tvisvar áður. "Það er mjög heppilegt að við ráðuneytinu taki maður með mikla reynslu og yfirsýn, eins og Davíð hefur öðlast sem forsætisráðherra í þrettán ár." Baldur tekur undir að Davíð komi sterkur inn í ráðuneytið og segir athyglisvert hversu mikil afskipti hann hafi haft af utanríkismálum í forsætisráðherratíð sinni. Hann hafi til dæmis leikið stórt hlutverk í viðræðum við Bandaríkjamenn vegna varnarsamstarfsins. "Davíð beitir mjög harðri samningatækni og hefur brugðist við af festu þegar kröfur hafa verið uppi að Íslendingar greiði meira í sjóði Evrópusambandsins vegna aðildar sinnar að EES. Það má búast við að hann verði afdráttalaus í utanríkismálum eins og hann hefur verið sem forsætisráðherra."
Fréttir Innlent Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Fleiri fréttir Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Sjá meira