Vill ekki til Finnlands 15. september 2004 00:01
Bandarískur maður sem handtekinn var þegar hann kom með Skógarfossi, skipi Eimskipafélagsins, til landsins á mánudagskvöld hafnar því að vera framseldur til Finnlands. Maðurinn hefur verið eftirlýstur í Finnlandi fyrir að hafa numið dóttur sína á brott seinni hluta ársins 2001. Smári Sigurðsson hjá alþjóðadeild ríkislögreglustjóra, segir barnsmóður mannsins, sem er finnsk, hafa forræði yfir dótturinni og því hafi maðurinn brotið lög þegar hann fór með hana til Bandaríkjanna. Síðar var dótturinni skilað aftur til móðurinnar í Finnlandi og er þar nú. Maðurinn var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald á meðan framsalsgagna er aflað en að því koma dómsmálaráðuneytið og ríkissaksóknari. Smári segir að í framhaldinu verði væntanlega tekin ákvörðun um hvort, og þá hvenær, maðurinn verði framseldur. Hann segir alþjóðadeildina fara yfir áhafnalista allra skipa annarra en fiskiskipa, og við þá athugun hafi komið í ljós að maðurinn væri eftirlýstur. Maðurinn var að koma með Skógarfossi frá Norður Ameríku og ekki er annað vitað en hann hafi verið á leið hingað til lands að sögn Smára.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira