Meira nám verði í grunnskólunum 15. september 2004 00:01
Mikið rými hefur myndast í grunnskólanum til að taka við meira námsefni. Það stafar meðal annars af því að hann hefur lengst um tvö skólaár á síðustu 7 - 8 árum, að sögn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Í skýrslu menntamálaráðuneytisins um breytta námsskipan til stúdentsprófs kemur meðal annars fram sú tillaga, að viðfangsefni byrjunaráfanga á framhaldsskólastigi í ensku, dönsku íslensku og stærðfræði verði flutt til grunnskóla að hluta eða í heild. Sé það liður í að stytta námstíma til stúdentsprófs. Skólaárið í framhaldsskóla verði lengt í 180 daga og verði við gerð nýrrar aðalnámsskrár miðað við 155 kennsludaga. Jafnframt verði aðalnámskrá framhaldsskóla breytt þannig, að áfangar muni stækka sem nemi lengingu kennslutíma. Miðað verði við að nám til stúdentsprófs verði 111 einingar, sem samsvara 119 einingum í núgildandi námsskipan. Nám til stúdentsprófs er nú 140 einingar. Þessar ráðstafanir ásamt fleirum verði til þess að stytta námstímann til stúdentsprófs um eitt ár, úr fjórum í þrjú. "Með þessum breytingum fáum við aukna samfellu í öllu skólastarfinu, allt frá leikskóla og upp í framhaldsskóla," sagði menntamálaráðherra. "Allar þessar breytingar hafa ekki í för með sér lengingu skóladags í grunnskólanum né heldur aukningu á starfstíma kennara. Það er einfaldlega verið að nýta það rými sem hefur skapast innan hans." Ráðherra sagði, að skýrslan væri mjög góður grunur undir að breyta skólakerfinu. "Þetta er eðlilegt næsta skref í þróun okkar skólastarfs sem átt hefur sér stað á undanförnum árum. Byrjað verður að endurskoða námsskrárnar 2006. Stefnan er að fyrstu nemendur inn í nýtt kerfi framhaldsskóla innritist 2007. Árið áður það er í 9. bekk, fari þeir í undirbúningi undir nýtt kerfi," sagði ráðherra, sem bætti við að mjög mikil áhersla yrði lögð á að allar breytingar á starfi og starfstilhögun kennara yrðu gerðar í mikilli sátt. Málið yrði unnið á löngum tíma til að gefa öllum, bæði nemendum og kennurum, tíma til að aðlaga sig að breyttu skólakerfi.
Fréttir Innlent Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Sjá meira