Innlent

Úr viðjum vanans

Alheimsborgari framdi gerning í Reykjavík í gær um samband manna við skepnur og þörfina á því að losna úr viðjum vanans, hugarfarsins og úrelts, ofmetins samskiptaforms. Ökumaður „höfrungabíls“ og dansarar sem túlkuðu sjávardýr byrjuðu á því að þykjast synda um í lokuðu afmörkuðu rými. Mynd af hvölum á íslenskum miðum var um leið varpað upp á skjá. Listamaðurinn, Rachael LeValley, dregur í efa að sjónvarp, tölvur, farsímar og hefðbundnir fjölmiðlar gefi rétta mynd af samfélaginu. Stjórnmálamenn noti þá til að villa um fyrir almenningi; þeir séu andlegt og tilfinningalegt deyfilyf - tæknilegt fíkniefni.  Höfrungabíllinn er tákn höfrungasamfélagsins sem vill samskipti við manninn og telur að hann eigi að hunsa hefðbundin form upplýsingamiðlunar. Hann braust svo út úr lokuðum fjölmiðlaheiminum og hin sjávardýrin sigldu í kjölfarið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×