Innlent

Fjölmenni á Landsmót hestamanna

Ellefu þúsund manns mættu á Landsmót hestamanna á Gaddstaðaflötum við Hellu sem lauk nú síðdegis. Fólk virðist hafa skemmt sér konunglega en fjöldi þeirra fíkniefnamála sem upp hafa komið í tengslum við mótið vekur undrun. Mótsgestir fengu milt og gott veður í dag þegar botninn var sleginn í með því að horfa á bestu keppnishrossin sem fram komu á mótinu. Mótið var með glæsilegasta móti í ár. Í B-flokki gæðinga. sem Nagli frá Þúfu sigraði en í A-flokki gæðinga var það Rökkvi frá Hárlaugsstöðum. Keppni í unglingaflokki var ekki síðri og hefði rétt eins getað verið fullorðinsflokkur þegar litið er til gæða og reiðmennsku. Lárus Dagur Pálsson, framkvæmdastjóri Landsmóts, og Sigurður Ævarsson mótstjóri voru báðir hæstánægðir með hvernig til tókst og sögðu þetta vera tímamótamót hvað gæði varðar. Hrossin hafa verið til fyrirmyndar og langflestir mótsgesta. Fjöldi þeirra fíkniefnamála sem upp hafa komið í tengslum við Landsmótið vekur þó undrun þar sem það telst til fjölskyldu- og íþróttamóta. Þau voru um tuttugu talsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×