Innlent

Hlusta ekki á neyðarbylgju

Landhelgisgæslan segir áhyggjuefni hve fáir skipstjórar hlusti á rás 16 sem er neyðarbylgja fyrir skip og báta og öllum sjófarendum er skylt að hlusta á. Landhelgisgæslan segir að þessi vanræksla dragi verulega úr öryggi á sjó. Varðstjórar hjá gæslunni urðu þessa varir í gær þegar hafin var leit að sómabátnum Eskey út af Snæfellsnesi í gær en hann hafði dottið út úr sjálfvirku tilkynningaskyldukerfi. Eskey var ekki í neinni hættu heldur að veiðum þar sem voru fleiri smábátar og hafði enginn þeirra hlýtt kallinu um að hefja leit að Eskey. Eskey hafði dottið út úr tilkynningarskyldukerfinu um kl. 11:41 og tilraunir til að ná sambandi við bátinn höfðu ekki borið árangur. Síðast var vitað um bátinn 19 sjómílur norðvestur af Rifi á Snæfellsnesi. Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 15 og fór TF-SIF í loftið hálftíma síðar. Þá var björgunarbáturinn Björg frá Ólafsvík einnig á siglingu í átt að svæðinu.  Er þyrlan kom á svæðið þar sem síðast var vitað um Eskey sáust nokkrir smábátar að veiðum og Eskey var einn þessara báta eins og áður sagði. Eftir að þyrlan hafði sveimað yfir Eskey skamma stund hafði skipverji á honum samband gegnum talstöð og spurðist fyrir um hvort verið væri að leita að honum, sendirinn fyrir sjálfvirka tilkynningarskyldukerfið væri dottinn út vegna bilunar.  Í ljós kom að skipverjar á Eskey höfðu ekki opna rás neyðarbylgjunnar og sama máli virtist gegna um aðra báta á svæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×