Á þriðja tug fíkniefnamála á Hellu 4. júlí 2004 00:01
Talið er að um 11 þúsund gestir hafi verið á Landsmóti hestamanna á Gaddstaðaflötum við Hellu en mótinu lýkur síðar í dag. Á þriðja tug fíkniefnamála hafa komið upp í tengslum við Landsmótið sem telst mikið fyrir fjölskyldu- og íþróttamót. Að mati lögreglumanna sem stóðu vaktina í nótt var ölvun mun minni á mótssvæðinu en var þar í fyrrinótt. Skemmtanahald hefur farið vel fram og engin stórmál komið á borð lögreglunnar. Hins vegar er fjöldinn allur af minni málum, smá pústrum og minni háttar líkamsmeiðingum þar sem gæslufólk hefur orðið að ganga á milli manna. Þá hafa komið upp nokkur mál sem tengjast eignaspjöllum. Fyrr í dag gistu tveir fangageymslur sem sögðust hafa fengið að pufukeyra í morgun glænýjan bíl frá einu bifreiðaumboðanna í Reykjavík. Þeir skruppu á bifreiðinni austur á Hellu á ofsahraða auk þess sem þeir eru grunaðir um að hafa verið undir áhrifum vímuefna. Lítilræði af fíkniefnum fannst við leit í bifreiðinni. Nýja bifreiðin er óskemmd eftir þessa hættuför. Fjölmenni var á tjaldsvæðinu að Skógum en þar er talið að um 500 manns hafi verið, svo og í Galtalækjarskógi þar sem ungmenni tóku að safnast saman þegar líða tók á helgina í tengslum við svokallaða SMS-hátíð sem ungmenni boða með SMS-skeytum sín á milli. Á þessum stöðum hefur verið talsverð ölvun en allt gengið bærilega vel fyrir sig þrátt fyrir það.
Fréttir Innlent Mest lesið RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Erlent Fullir í flugi Innlent Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Erlent Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Erlent Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots Innlent Fleiri fréttir Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar Sjá meira