Árni Már varð Norðurlandameistari 5. desember 2004 00:01
Árni Már Árnason, sundfélaginu Ægi, varð í gær Norðurlandameistari í 100 metra bringusundi á Norðurlandamóti unglinga í sundi sem fram fór um helgina í Nærum í Danmörku. Árni Már kórónaði þar með frábæra helgi sína en hann hafði áður unnið til tveggja silfurverðlauna í 50 og 200 metra bringusundi auk þess að vera í piltasveitinni í 4 x 100 metra fjórsundi sem vann til bronsverðlauna. Alls unnu íslensku krakkarnir til sjö verðlauna á mótinu, eins gulls, fjögurra silfurverðlauna og tveggja bronsverðlauna. Íslenska liðið hafnaði í fjórða sæti í stigakeppninni á undan Noregi, Eistlandi og Færeyjum en það er ekki nóg með að árangurinn hafi verið góður og að nánast allt íslenska sundfólkið hafi bætt sig þá var frábær stemning í íslenska hópnum og vakti liðsandi Íslendinganna mikla athygli. Árni Már Árnason náði fyrst öðru sætinu í 200 metra bringusundi á föstudagskvöldið þegar hann synti 2:16,89 mínútum, skömmu seinna náði hann bronsverðlaunum og setti Landssveitarmet með piltasveitinni í 4 x 100 metra fjórsundi en auk hans voru í sveitinni Birkir Már Jónsson, ÍRB (baksund), Hjalti Rúnar Oddsson, Selfossi (flugsund) og Jón Símon Gíslason Ægi (skriðsund) en Árni Már synti að sjálfsögðu bringusundið þar sem hann er bestur. Á laugardeginum nældi Árni Már sér í silfur í 50 metra bringusundi þar sem hann synti í fyrsta sinn undir 30 sekúndum (29,77) og vann síðan gullið í 100 metra bringusundinu í gær þegar að hann synti á 1:03,51 mínútu. Árni Már var auk þess rétt við það að komast á verðlaunapall í 50 metra skriðsundi þar sem hann endaði í fjórða sæti. Þrjár stelpur náðu einnig í verðlaun á mótinu. Auður Sif Jónsdóttir úr Ægi vann brons á föstudaginn í 800 metra skriðsundi þegar hún synti á 9:06,14 mínútum, Sigrún Brá Sverrisdóttir úr Fjölni vann silfur og setti telpna- og stúlknamet í 100 metra skriðsundi þegar hún synti á 57,31 sekúndum og þá vann Jóhanna Gerða Gústafsdóttir úr Ægi silfur í 400 metra fjórsundi þegar hún setti telpnamet og synti á 5:00,38 mínútum. Jóhanna Gerða bætti metið um heilar átta sekúndur og er aðeins rétt við það að komast undir fimm mínútna markið sem er frábær árangur. Auk þessa setti Birkir Már Jónsson úr ÍRB piltamet í 200 metra flugsundi (2:07,13 mín.). Jóhanna Gerða var aðeins 13 sekúndubrotum frá því að vinna til verðlauna í 200 metra baksundi og piltasveitin í 4 x 200 metra skiðsundi setti Landssveitarmet.
Íþróttir Mest lesið Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Körfubolti Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Handbolti Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Enski boltinn Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Enski boltinn Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Fótbolti Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Enski boltinn Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Handbolti Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Íslenski boltinn Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Skoruðu eftir 15 sekúndur og Þórir fékk engu breytt Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Landsliðstríóið í úrslit um þýska titilinn Lið Benónýs í góðri stöðu eftir dramatískt sigurmark Litli bróðir ætlar líka að verða meistari Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Skjöldur á loft hjá Glódísi og Bayern Munchen Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Birta fallin með Genoa eftir tap í Íslendingaslag Sjáðu markið: Róbert Frosti hetja GAIS Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Ísak Snær aftur upp í efstu deild með Lyngby Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Freyr getur unnið sinn fyrsta titil með Brann í dag: „Yrði stórkostlegt“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar hefst Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum „Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Umfjöllun og viðtal: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 2-3: Halda áfram að kremja mótherjana eins og skordýr Fylgist ekki með umræðunni um starf sitt: „Maður er samt ekkert vitlaus“ Sjá meira