Lífið
Vaknar 04:30 til að æfa Michelle Obama segist ekki getað verið án líkamsræktar en hún fer á fætur klukkan 04:30 á hverjum einasta morgni því það er eini tíminn sem hún á aflögu til að hreyfa sig. Stæltir handleggir Michelle hafa verið lofaðir viða um heim en hún er þekkt fyrir að hugsa sérstaklega vel um líkama sinn og svo er hún óhrædd við að ræða opinskátt hvernig hún heldur sér í formi. Michelle hugar líka vel að mataræðinu en leyfir sér líka að borða óhollustu. Ef henni finnst hún hafa farið yfir strikið þegar kemur að mataræðinu þá borðar hún eingöngu grænmeti í einn til tvo daga til að hreinsa eða afeitra (detoxa) líkama sinn. „Fyrir stuttu þurfti ég að hreinsa mig aðeins og borðaði eingöngu grænmeti. Það er í lagi að gera það í nokkra daga en ekki lengur. Ég trúi því að það sé gott að hreinsa líkamann með vissu millibili," sagði Michelle. „Þegar ég borða sykur langar mig alltaf í meiri sykur. Því meira sem þú innbyrðir af óhollustu því meiri óhollustu langar þig í. Ég er ein af þeim sem elska að borða og verð því að fara gætilega." Lífið 5.8.2010 12:00
Daglega hraðgöngu með kvikindið Söngkona Jessica Simpson æfir Crossfit þegar hún vill komast í gott form á stuttum tíma. Ég legg áherslu á hollt mataræði þegar ég æfi. Ég elska brún hrisgrjón og kjúkling en ég sneyði algjörlega hjá sælgæti ef ég get. Þegar ég er að farast af því að mig langar í sætindi þá fæ ég mér sykurlaust Jell-O," sagði Jessica. Við gerðum könnun á meðal lesenda Lífsins á Facebooksíðunni okkar og spurðum stundar þú líkamsrækt? Lífið 5.8.2010 10:03
Engar lýtaaðgerðir Leikkonan Julia Roberts, 42 ára, segist aldrei ætla að láta breyta sér á nokkurn hátt með því að fara í lýtaaðgerð í framtíðinni. Julia, sem fer með aðalhlutverki í myndinni Eat, Pray, Love lætur hafa þetta eftir sér í nýjatsa tölublaði ELLE. Ég vil að börnin mín skilji tilfinningar mínar. Þegar ég er reið, hamingjusöm og líka ringluð. Andlitið á okkur segir sögu okkar og þess vegna megum við ekki skilja þessa sögu eftir á læknastöðinni." Það er sorglegt að við lifum í nútímasamfélagi þar sem konur gefa sér ekki tækifæri á að eldast á eðlilegan máta. Ég vil að börnin mín sjái mig eins og ég er." Lífið 5.8.2010 09:06
Kennir trommuleik Sýnikennsla og fyrirlestur með bandaríska trommuleikaranum Tom Brechtlein verður í sal Tónlistarskóla FÍH þriðjudaginn 10. ágúst. Lífið 5.8.2010 08:00
Jennifer Aniston hatar stefnumót Leikkonan Jennifer Aniston segist hata að fara á stefnumót og viðurkennir að hún hafi yfirgefið karlmenn á veitingastöðum vegna þess að hún hafi verið byrjuð að geispa yfir súpunni Lífið 5.8.2010 07:00
Leikur Afann í sínum fyrsta einleik á ferlinum Sigurður Sigurjónsson leikur í einleiknum Afinn sem verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu um miðjan janúar. Leikstjóri verður Bjarni Haukur Þórsson, sem lék einmitt undir stjórn Sigurðar í hinum vinsæla einleik Pabbinn fyrir þremur árum og í Hellisbúanum. Lífið 5.8.2010 06:00
Stórleikirnir í brennidepli í þætti Hjörvars og Gumma Fótboltasérfræðingarnir Hjörvar K. Hafliðason og Guðmundur Benediktsson stjórna nýjum sjónvarpsþætti um enska boltann á Stöð 2 Sport 2 í vetur. Lífið 5.8.2010 06:00
Harry Potter-stjarna með stúlku Fjölmiðlar vestanhafs halda því fram að Daniel Radcliffe sé að fara á fjörurnar við stjúpdóttir framleiðanda myndanna um galdrastrákinn Harry Potter. Lífið 5.8.2010 06:00
Góðir gestir á Control-hátíð Ian Livingstone, forstjóri tölvuleikjafyrirtækisins Eidos, og breski Grammy-verðlaunahafinn Imogen Heap verða á meðal fyrirlesara á tónlistarráðstefnunni You Are In Control sem verður haldin 1. og 2. október. Fyrirtækið Eidos hefur meðal annars dreift tölvuleikjunum Lara Croft og Hitman. Lífið 5.8.2010 06:00
Afturhvarf á nýrri plötu Hljómsveitin REM er að taka upp afturhvarfs-plötu í anda upphafsára sinna og er hún væntanleg í verslanir á næsta ári. Ken Stringfellow, sem hefur unnið með sveitinni á undanförnum árum, heyrði ófullgerða útgáfu af plötunni á heimili bassaleikarans Mikes Mills og heillaðist mjög af henni. Lífið 5.8.2010 04:00
Skreyttu Octopus með gjöfum fyrir kærustu Paul Allen Bandaríski auðkýfingurinn Paul Allen lét búa skip sitt gjöfum fyrir 30 ára gamla kærustu sína, sem hélt upp á afmælið sitt hér á landi. Lífið 5.8.2010 04:00
Sean Penn loksins skilinn Leikararnir Sean Penn og Robin Wright hafa komist að samkomulagi um meðlag, makalífeyri, forræði yfir syni þeirra og skiptingu eigna. Lífið 4.8.2010 22:11
Hollywood-brjálæði í Simpsons Sjaldan hafa jafn margir gestaleikarar verið bókaðir eins og fyrir nýjustu þáttaröð Simpson-fjölskyldunnar, sem fer í loftið í september. Lífið 4.8.2010 18:00
Mel vill eignast strák Söngkonan Mel B, 35 ára, segir ekkert að marka sögusagnir um að hún sé ólétt en það sást til hennar og eiginmannsins nýverið þar sem hann strauk magann á henni í sífellu. Söngkonan, sem er gift Stephen Belafonte, á tvær stúlkur fyrir. Mel segir það ekki vera neitt leyndarmál að hún þráir að fjölga mannkyninu. Hjónin yfirgáfu veitingahúsið Beso í Hollywood eftir rómantískan kvöldverð í vikunni þar sem þau létu vel að hvort öðru. Stephen hélt um magann á Mel þegar þau yfirgáfu veitingahúsið að sögn sjónarvotta. „Ég elska börn og já við viljum ólm eignast fleiri börn saman. Það væri draumur að eignast dreng. Við skulum bara sjá hvað gerist," sagði Mel. Lífið 4.8.2010 17:00
Brjóstagjöf er málið að mati Gisele Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bundchen, 30 ára, er fylgjandi brjóstagjöf. Að hennar mati ætti að skylda allar mæður að fæða börn sín með brjóstamjólk fyrstu sex mánuði eftir fæðingu. Ég veit að ég náði mér svona fljótt líkamlega af því að ég hafði hann á brjósti," sagði Gisele. Sumir halda því fram að það sé óþarfi að fæða börnin með brjóstamjólkinni en ég er alfarið á móti því að gefa barninu annað en brjóstamjólk fyrstu mánuðina." Gisele fæddi son sinn, Benjamin, á heimili sínu án þess að fá nokkur verkjalyf. Lífið 4.8.2010 16:00
Madonna framleiðir eigin fatalínu Madonna, 51 árs, þótti standa sig með stakri prýði þegar hún myndaði sjálf fyrir nýju fataframleiðslu hennar og dóttur sinni, Lourdes, 13 ára. Umrædd fatalína ber heitið Material Girl og er ætluð 14-24 ára konum. Madonna mætti á svæðið þar sem myndatakan fyrir auglýsingaherfð Material Girl fór fram og tók strax stjórnina í sínar hendur og þar á meðal myndavél ljósmyndarans og hóf að mynda fyrirsætuna. Madonna klæddi módelið í trefil, setti á það hatt og byrjaði að mynda. Hún virtist vita nákvæmlega hvað hún var að gera," er haft eftir viðstöddum heimildarmanni. Fatalínan Material Girl er seld í verslunum Macy´s í Bandaríkjunum. Lífið 4.8.2010 14:00
Amiina sér um Pönk á Patró um helgina Næstkomandi laugardag, 7. ágúst, verður Pönk á Patró haldið í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði, í annað sinn í sumar. Dagskráin er glæsileg en það er hljómsveitin Amiina sem fetar í fótspor hljómsveitarinnar Pollapönk sem gerði góða ferð á Patreksfjörð 26. júní síðastliðinn. Lífið 4.8.2010 12:00
Vill alls ekki léttast meira „Ég vil alls ekki léttast meira en ég vil halda áfram að styrkjast og ég tek það fram að þú munt aldrei sjá mig grindhoraða," segir Jennifer í tímaritinu InStyle Makeover. Lífið 4.8.2010 12:00
Kennir sænskum piltum dans Íslenski Dansflokkurinn hefur staðið fyrir sérstökum Strákanámskeiðum síðustu fimm ár. Á námskeiðunum kynna dansarar frá flokknum nútímadans fyrir unglingsstrákum. Námskeiðin hafa vakið mikla lukku meðal unglingspilta hér á landi og nú hefur flokkurinn ákveðið að fara í útrás með námskeiðin. Lífið 4.8.2010 11:00
Bjóða upp á kaffi í stað súpu á Fiskideginum „Mér líður eins og föðurlandssvikara að vera ekki með súpu. Mér finnst eins og það sé nánast þegnskylda að gera þetta,“ segir Svanhildur Hólm, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Lífið 4.8.2010 11:00
Finnur fyrir afbrýðisemi í sinn garð Ítalska fjölmiðlakonan Elisabetta Canalis, 31 árs unnusta leikarans George Clooney, 49 ára, er oft á tíðum óörugg í sambandinu. Fyrirsætan og sjónvarpsstjarnan Elisabetta Canalis byrjaði að hitta George á síðasta ári. Síðan þá hafa sögusagnir um parið. Elisabetta ræðir í fyrsta sinn opinskátt um samband hennar og Hollywood leikarans í ítalska Vanity Fair tímaritinu. Þar viðurkennir sjónvarpsstjarnan hvað hún tekur nærri sér baktalið sem fylgir frægðinni. „Það er til fólk sem vill ekki að ég sé hamingjusöm. Þetta gæti hljómað eins og klisja en þetta er sannleikurinn. Ítalir geta ekki samglaðst löndum sínum sem fá viðurkenningu erlendis," lætur Elisabetta hafa eftir sér. „Ég er stundum óörugg en þegar ég finn að ég er elskuð þá líður mér vel. George og ég erum mjög náin. Hann hvetur mig öllum stundum og styður mig." Elisabettu hryllir við því hvernig fólk hefur brugðist við ástarsambandi hennar og George. Hún segir konur vera afbrýðisamar út í hana og vonar að þær komist yfir það. Hún hefur ákveðið að láta alla neikvæðni lönd og leið. „George hefur gefið tilveru minni lit á ný. Mér líður eins og ég sé 18 ára á ný. Mér líður frábærlega." Lífið 4.8.2010 10:00
Dóri DNA leikur Mario í leit að týndu prinsessunni „Singalong“-sýningin Mario Bros verður sett upp um miðjan ágúst af danshópnum Dans á rósum. Hér er um að ræða sýningu þar sem gestir eru hitaðir upp fyrir sýningu til að taka þátt í völdum atriðum. Lífið 4.8.2010 10:00
Nicolas Cage hættir við Trespass á síðustu stundu Hollywood stjarnan Nicolas Cage hefur skyndilega dregið sig út úr nýju mynd Joels Schumacher, Trespass, og það einungis tveim vikum áður en upptökur áttu að hefjast. Lífið 4.8.2010 09:00
Sandra toppar þær allar Sandra Bullock, 46 ára, er hæstlaunaðasta leikkona veraldar samkvæmt lista Forbes tímaritsins yfir tekjuhæstu leikkonur í Hollywood. Tekjur Söndru frá júní 2009 til júní 2010 nema 56 milljón dollurum. Kvikmyndirnar The Proposal, sem þénaði 320 million dollara og The Blind Side, sem halaði inn 310 milljón dollara, eru ástæðan fyrir feitum launatékkum leikkonunnar. Reese Witherspoon og Cameron Diaz þénuðu 32 milljónir bæði í nafni leiklistarinnar og ýmissa auglýsingasamninga. Þá þénaði Jennifer Aniston 27 milljónir dollara og rétt á eftir henni er Sex and the City stjarnan Sarah Jessica Parker sem rakaði inn 25 milljónum dollara. Julia Roberts og Angelina Jolie sitja saman í fimmta sæti með 20 milljónir hvor. Forbes listinn/Topp#5 hæst launuðu Hollywoodl eikkonurnar 1. Sandra Bullock, $56 milljónir 2. Reese Witherspoon, $32 milljónir 2. Cameron Diaz, $32 milljónir 4. Jennifer Aniston, $27 milljónir 5. Sara Jessica Parker $25 milljónir 6. Julia Roberts, $20 milljónir 6. Angelina Jolie, $20 milljónir Lífið 4.8.2010 09:00
Draumurinn vakti lukku í Santiago Fyrsti myndhlutinn af fimm úr kvikmyndinni Draumurinn um veginn, sem fjallar um 800 km pílagrímsgöngu skáldsins Thors Vilhjálmssonar til Santiago de Compostela á Spáni, var frumsýndur í Santiago-borg á dögunum við mjög góðar undirtektir. Lífið 4.8.2010 08:00
Spila á brasilískri tónlistarhátíð Hljómsveitin Sin Fang, sem áður hét Sin Fang Bous, spilar á tónlistarhátíð í Brasilíu 6. og 8. ágúst. Hátíðin nefnist Rojo-Nova og fer fram í borginni Sao Paulo. Lífið 4.8.2010 06:00
Kattarkonan í næstu mynd um Leðurblökumanninn? Batman-nördar um allan heim myndu örugglega fagna ef Kattarkonan yrði í næstu mynd um hetjuna. Nú gengur sá orðrómur um netheima að búið sé að skrifa hana inn í næstu mynd. Lífið 4.8.2010 06:00
Tiger vill kvænast að nýju Tiger Woods ku vera í brúðkaupshugleiðingum þrátt fyrir að skilnaður hans og Elinar Nordegren sé enn ekki fullfrágenginn. Lífið 4.8.2010 06:00
Ólétt fyrirsæta Sá orðrómur er á sveimi að fyrirsætan Miranda Kerr og leikarinn Orlando Bloom eigi von á barni. Parið, sem gifti sig á laun fyrir stuttu síðan, hefur þó ekki staðfest þessar fregnir en vinnufélagi Kerr fullyrti þetta við fjölmiðla vestanhafs. Jessica White fyrirsæta sagði að Kerr væri ólétt og að ný Lífið 4.8.2010 06:00
Ættleiðir tvo hunda Strandvarðagellan fyrrverandi, Pamela Anderson, hefur ættleitt tvo hunda sem voru yfirgefnir í kjölfar olíulekans við Mexíkóflóa. Anderson er heiðursformaður dýraverndunarsamtakanna PETA og komst í mikið uppnám þegar hún frétti af því að fimmtíu hundar hefðu verið yfirgefnir eftir lekann. Lífið 4.8.2010 06:00