Lífið

Þú hreinlega verður að taka afstöðu

„Við áhorf myndanna verða þessir einstaklingar svo nærri þér að þú hreinlega verður að taka afstöðu og grípa til aðgerða,“ segir Bryndís Bjarnadóttir. Mannréttindasamtökin Amnesty International standa ásamt Bíói Paradís fyrir kvikmyndadögunum (Ó)sýnileg, sem hefjast á morgun. Tólf heimildarmyndir sýna þrautseigju fólks sem berst fyrir rétti sínum.

Lífið

Segir Bieber eiga barnið

Nýbökuð móðir í Kaliforníu, Mariah Yeater, 20 ára, heldur því fram í Star tímaritinu að Justin Bieber, 17 ára súperstjarna, sé faðir drengsins hennar, sem er þriggja mánaða gamall....

Lífið

Mikill áhugi á Innihaldi

Yfir fjórtán þúsund Íslendingar hafa heimsótt nýja vefmiðilinn Innihald.is en hann fór í loftið á laugardaginn. Þær Sigrún Jóhannsdóttir, Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir og Anna Jóna Heimisdóttir sem skipa ritstjórn miðilsins eru í skýjunum yfir viðtökunum. Innihald.is er í senn afþreyingarvefur og vettvangur málefnalegrar umræðu.

Lífið

Moore ósáttur við Bond

Sir Roger Moore segir að síðasta myndin um James Bond, Quantum of Solace, hafi verið eins og sundurlaus auglýsing. Moore, sem fór með hlutverk njósnara hennar hátignar í sjö myndum á árunum 1973-1985, segir að sagan sé ekki nóg sterk og myndin sé of löng. Þá gagnrýnir hann vöruinnsetningar í myndinni. „Ég var ekki hrifinn af síðustu Bond-mynd. Hún er var eins og löng, sundurlaus auglýsing,“ sagði hann.

Lífið

Hita upp fyrir veigamestu jazzveislu Íslendinga erlendis

Hljómsveit gítarleikarans Ómars Guðjónssonar heldur tónleika á Jazzklúbbnum Múlanum í Norræna húsinu í kvöld. Tilefnið er að hita upp fyrir tónleika sveitarinnar á London Jazzfestival í næstu viku. Þar mun hljómsveitin koma fram ásamt þremur öðrum íslenskum böndum.

Tónlist

Svona gerir maður ekki

Chris Brown söngvari setti mynd af sjálfum sér á Twitter síðuna sína þar sem hann pósar í grænum þröngum spandex grímubúningi...

Lífið

Opna hamborgarastað við Strikið

"Viðtökurnar eru búnar að vera vægast sagt frábærar og fólk er í skýjunum yfir hamborgaranum okkar,“ segir Arnar Már Guðmundsson, yfirkokkur hamborgarastaðarins Burgerjoint Copenhagen sem opnaði á Skindergade í Kaupmannahöfn á föstudag.

Lífið

Ekki horfa ef þú kannt að daðra

Þegar þið eruð búnar að vera giftar karlinum í par mörg ár þá fáið þið ekkert í hnén þegar við erum á brókinni, segir Heiðar Jónsson í meðfylgjandi myndskeiði en hann ætlar að kenna konum að daðra á veitingahúsinu Esju í Austurstræti í kvöld. Þá spáir Heiðar fyrir gestum og les í augu svo eitthvað sé nefnt.

Lífið

Verðugur arftaki Dr. Jones

Uncharted 3 er flottari en svölustu hasarmyndir og heldur manni rígföstum frá upphafi til enda. Hreint frábær leikur sem ætti að vera skyldueign fyrir alla unnendur ævintýra og hasars.

Gagnrýni

Sveinn Dúa fagnar sönglagaplötu

„Tónleikarnir verða góðir, platan verður flutt eins og hún kemur fyrir. Og svo verður auðvitað Sigríður Thorlacius með okkur, en það er einn dúett á plötunni með okkur. Ég er mjög ánægður með útkomuna og viðtökurnar,“ segir tenórinn Sveinn Dúa Hjörleifsson sem fagnar útkomu fyrstu einsöngsplötu sinnar með útgáfutónleikum í Salnum í Kópavogi á sunnudagskvöld klukkan 20.

Menning

Justin Bieber í mútur

Justin Bieber átti í erfiðleikum með röddina þegar hann söng dúett með Mariuh Carey og vill umboðsmaður söngvarans meina að unglingsstjarnan sé komin í mútur. Bieber og Carey sungu saman gamlan slagara söngkonunnar, All I Want for Christmas Is You, og átti Bieber víst í miklum erfiðleikum með að ná háu tónunum.

Lífið

Ásdís Rán léttklædd í myndatöku

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá Ásdísi Rán sitja fyrir léttklædd þegar myndataka fyrir auglýsingaherferð IceQueen undirfatalínunnar fór fram á hótelherbergi í Búlgaríu þar sem Ásdís býr ásamt fjölskyldu...

Lífið

Ætlar að verða betri en pabbi hans á hjólabrettinu

„Ég held ég hafi verið svona sjö ára þegar ég byrjaði að skeita. Pabbi kenndi mér fyrst en svo fór ég að æfa mig bara sjálfur,“ segir Sigfinnur Böðvarsson, þrettán ára Kópavogsbúi, sem bar sigur úr býtum í flokki 14 ára og yngri í BMX- og hjólabrettakeppni DC Global Trips sem haldin var í Laugardalshöll um helgina.

Lífið

Kim og Kris í tölum

Fátt hefur vakið meira athygli en skilnaður raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian og Kris Humphries. Hjónaband þeirra entist aðeins í 72 daga þrátt fyrir að öllu hefði verið tjaldað til þegar þau játuðust hvort öðru frammi fyrir Guði og E!-sjónvarpsstöðinni.

Lífið

Hjálmar gefa út á gömlu góðu kassettunni

Guðmundur Kristinn Jónsson og félagar í reggísveitinni Hjálmum senda frá sér sína fimmtu hljóðversplötu í dag. Platan nefnist Órar og verður henni væntanlega vel tekið hjá traustum aðdáendahópi sveitarinnar, sem keypti tíu þúsund eintök af síðustu plötu.

Lífið

Gefur frumsmíðinni ekkert eftir

Mesópótamía flott plata sem gefur frumsmíðinni ekkert eftir. Agnes Björt er skemmtileg söngkona sem gerir mikið fyrir sveitina, bæði á plötunni og með líflegri sviðsframkomu á tónleikum. Aðdáendur FM Belfast, Gus Gus og Bloodgroup ættu að kíkja á Sykur.

Gagnrýni

Þetta var sko almennilegt skákpartý

Í tilefni af útkomu skáldsögunnar Lygarinn eftir Óttar M. Norðfjörð var partý í versluninni Eymundsson á Skólavörðustíg þar sem eitt einvígisborðanna frá einvígi aldarinnar var notað hvorki meira né minna.

Lífið

Svanasöngur Amy Winehouse

Ný plata með söngkonunni Amy Winehouse kemur út í byrjun desember, en hún lést fyrr á þessu ári vegna ofneyslu áfengis.

Lífið

Drepur í fyrir börnin

Leikarinn Brad Pitt skammast sín ógurlega eftir að dætur hans, Zahara og Shiloh, komu að honum reykjandi úti á tröppum. Pitt á eflaust erfitt með að finna sér stað á heimilinu þar sem hann getur reykt óáreittur enda á hann sex börn með leikkonunni Angelinu.

Lífið

Féll fyrir Ósló en lögð inn á spítala í Malmö

Söngkonan Rihanna tróð upp í Ósló um helgina, en meðal áhorfenda var meðal annars norska krónprinsessan Mette-Marit og sonur hennar Maríus. Rihönnu líkaði dvölin í höfuðborg Noregs vel og hrósaði áhorfendum sérstaklega að tónleikum loknum á samskiptavefnum Twitter. "Takk fyrir móttökurnar Ósló. Þið létuð mér líða eins og heima hjá mér.“

Lífið

Ótrúlega stolt af Rúnari

„Þetta er mjög ánægjulegt fyrir hann og Rúnar á mikla framtíð fyrir sér. Hann lagði mikla vinnu og mikinn metnað í þetta verkefni,“ segir Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona. Kvikmyndin Eldfjall eftir Rúnar Rúnarsson heldur áfram að bæta á sig blómum því myndin hlaut nýverið verðlaun í flokknum „Meeting Points“ á kvikmyndahátíðinni í Valladolid á Spáni. Flokkurinn er tileinkaður fyrstu kvikmynd leikstjóra.

Lífið

Losnaðu við gaurinn á 10 vikum

Í meðfylgjandi myndasafni rifjum við upp besta brandarabrúðkaup allra tíma í Hollywood sem var á endanum þrælskemmtilegur sjónvarpsraunveruleikaþáttur....

Lífið