Lífið

Júlí Heiðar - Vill vinna með Justin Bieber

Hlustendaverðlaun FM 957 fara fram með pompi og prakt næsta laugardag í Hörpu. Upphitun fyrir hátíðina hefur staðið yfir alla vikuna og hefur útvarpsmaðurinn Brynjar Már kallað til sín fjöldan allan af tónlistarmönnum sem koma fram og eru tilnefndir á laugardaginn.

Lífið

Haukur Heiðar í Diktu - Helsti áhrifavaldurinn

Hlustendaverðlaun FM 957 fara fram með pompi og prakt næsta laugardag í Hörpu. Upphitun fyrir hátíðina hefur staðið yfir alla vikuna og hefur útvarpsmaðurinn Brynjar Már kallað til sín fjöldan allan af tónlistarmönnum sem koma fram og eru tilnefndir á laugardaginn.

Lífið

Þú ert stokkbólgin í andlitinu kona

Í meðfylgjandi myndaalbúmi má skoða enn eitt dæmið um afmyndað andlit á glæsilegri konu á besta aldri. Í þessu tilfelli er um að ræða 58 ára gamla breska fyrirsætu, Marie Helvin, sem var áberandi bólgin í andliti á rauða dreglinum í gær. Meðfylgjandi má sjá hvernig Marie leit út í gærkvöldi og áður en andlit hennar gjörbreyttist.

Lífið

Íris Hólm - Það er ekki sexý ef konur eru órakaðar

Hlustendaverðlaun FM 957 fara fram með pompi og prakt næsta laugardag í Hörpu. Upphitun fyrir hátíðina hefur staðið yfir alla vikuna og hefur útvarpsmaðurinn Brynjar Már kallað til sín fjöldan allan af tónlistarmönnum sem koma fram og eru tilnefndir á laugardaginn.

Lífið

Haugadrukkinn umvafinn kvenfólki

Aðeins tveimur mánuðum eftir sambandsslit Bridget Jones stjörnunnar, Renee Zellweger, og leikarans Bradley Cooper, 35 ára, er hann byrjaður að stunda djammið og það stíft. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndaalbúmi er Bradley staddur á kvikmyndahátíðinni í Cannes þar sem hann var myndaður drukkinn með nýju kærustunni sem heitir Stacey.

Lífið

Flott fyrir sumarið - Hrafnhildur Hólmgeirs

Sé einhver í vafa um hvað sé heitt í tískunni í sumar þarf ekki að örvænta mikið lengur því Föstudagur leitaði til þriggja landsþekktra stílista og fékk þá til að deila því með lesendum hvað þarf að eignast fyrir sumarið.

Tíska og hönnun

Flott fyrir sumarið - Alda Guðjóns

Í síðustu viku fengu landsmenn loks svolítið sumarveður og vakti það upp þrána eftir betri tíð með blóm í haga. Borgarbúar tóku sólinni fagnandi og dregið fram stuttbuxur, sandala og ermalausa kjóla henni til heiðurs.

Tíska og hönnun

Launsonur Schwarzenegger

Fátt var um svör hjá Arnold Schwarzenegger þegar blaðamenn Los Angeles Times spurðu hann út í barnið sem ein af þernum hans og eiginkonu hans Mariu Shriver eignaðist fyrir tæpum fjórtán árum. Tortímandinn var afhjúpaður; Schwarzenegger, sem hefur gert mikið úr ímynd sinni sem fjölskyldumaður, hafði eignast barn utan hjónabands og þegar eiginkona hans komst að því tilkynnti hún manni sínum að hún hefði engan áhuga á hjónabandinu lengur, þau væru skilin. Maria Shriver flutti út af heimilinu fyrr á þessu ári en samkvæmt bandarískum fjölmiðlum féllst hún á að bíða með yfirlýsingu um hjónaskilnaðinn þar til ríkisstjóraferli Schwarzenegger væri lokið. Meðfylgjandi má sjá drenginn og móður hans Mildred Baena, 50 ára, sem hætti að vinna fyrir fjölskylduna fyrr á þessu ári. Mánaðarlaun þernunnar voru rúmar 138 þúsund íslenskar krónur.

Lífið

Er mín að versla til að gleyma?

Á meðan Leonardo DiCaprio fyrrverandi unnusti fyrirsætunnar Bar Refaeli daðrar við Hollywoodstjörnu á lúxussnekkju á kvikmyndahátíðinni í Cannes líkt og enginn væri morgundagurinn reynir Bar að einbeita sér að því að versla á milli þess sem hún starir á símann sinn eins og sjá má í myndasafni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem DiCaprio og Rafaeli hætta saman, þau voru í sundur í sex mánuði árið 2009 eftir að hafa verið saman í fjögur ár.

Lífið

Kominn með nýja korter eftir sambandsslit

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær af leikaranum Leonardo DiCaprio og leikkonunni Blake Lively á lúxussnekkju í Cannes. Eins og sjá má í myndasafni leiddist leikurunum ekki saman en Leonardo hætti með kærustunnu sinni, ísraelsku fyrirsætunni Bar Rafaeli, í síðustu viku. Leo hefur lýst því yfir opinberlega að hann sé ekki viss um að hjónaband sé rétti hluturinn fyrir sig. "Ég hef séð allt of mörg hamingjusöm hjónabönd fara í súginn og þá hef ég yfirleitt verið jafn hissa og allir aðrir." Þá má einnig sjá Blake stilla sér upp á rauða dreglinum.

Lífið

Það er ekki sjón að sjá þig maður

Mel Gibson var myndaður á hótelsvölum í Cannes í gær frekar sjúskaður á að líta eins og myndirnar sýna. Mel Gibson hefur farið huldu höfði eftir að upp úr sambandi hans og Oksönu Grigorieva slitnaði enda opinberaði Oksana upptökur þar sem Gibson jós yfir

Lífið

Tortímandinn afhjúpaður

Þekktasta hasarhetja kvikmyndasögunnar, Arnold Schwarzenegger, og eiginkona hans til 25 ára, Maria Shriver, tilkynntu fyrir skemmstu að þau hygðust skilja. Engar ástæður voru gefnar upp þá en kraftakarlinn virðist hafa haft óhreint mjöl í pokahorninu.

Lífið

Hitti Mads Mikkelsen í Cannes

„Hann var rosalega kammó og fannst gaman að spjalla,“ segir leikarinn Theódór Júlíusson sem hitti kollega sinn, hinn danska Mads Mikkelsen, á kvikmyndahátíðinni í Cannes.

Lífið

Norska ríkissjónvarpið vill endurgera Næturvaktina

„Norðmennirnir eru mjög áhugasamir og endurgerðin lítur mjög vel út þar. Það er meðal annars ástæðan fyrir því að þeir hafa ekki keypt sýningarréttinn, þeir vilja gera sína eigin útgáfu,“ segir Kjartan Þórðarson, framkvæmdastjóri Saga Film.

Lífið

Orðnir vinir á Twitter

Söngkonan Rihanna er aftur komin í samband við fyrrverandi kærasta sinn, Chris Brown, en núna í gegnum Twitter-síðuna. Hún hefur bætt honum á lista yfir Twitter-vini sína og kom það mörgum aðdáendum hennar á óvart. Ástæðan er sú að Brown var dæmdur í fimm ára skilorðsbundið fangelsi og sex mánaða samfélagsþjónustu fyrir að ráðast á Rihönnu fyrir tveimur árum. „Þetta er bara Twitter, ekki altarið!“ sagði hin 23 ára Rihanna við einn aðdáandann sem lýsti yfir undrun sinni.

Lífið

Rómantískt goth frá Karli Lagerfeld

Línur tískuhússins Chanel fyrir þetta ár eru unglegri og frjálslegri en oft áður og vaknar því upp sú spurning hvort Lagerfeld sé að reyna að ná til yngri markhóps. Vor- og sumarlína Chanel var nokkuð einstök. Línan er eins og draumkennd blanda af Chanel-klassík og fáguðu „gothi" og ef vel er rýnt má sjá svolítið af tíunda áratugnum þarna líka (í formi þykksóla sandala).

Tíska og hönnun

Pínu flegið finnst þér ekki?

Söngkonan Gwen Stefani var vægast sagt stórglæsileg í Cannes eins og myndirnar sem teknar voru af henni í gærkvöldi sýna. Kjóll söngkonunnar var í flegnari kantinum eins og sjá má. Þá má einnig sjá Gwen sóla sig í fyrradag í myndasafni.

Lífið

Lady Gaga á lausu

Söngkonuna Lady Gaga, 25 ára, má skoða í meðfylgjandi myndaalbúmi þar sem hún gefur aðdáendum sínum smákökur. Stelpan er hætt með kærasta sínum, Luc Carl, til margra ára. Ég er ekki að hitta neinn og nei það er enginn kærasti á þessum tímapunkti í lífi mínu. Mér leiðast karlmenn mjög fljótt eftir að ég kynnist þeim. Svo er líka brjálað að gera hjá mér, sagði Lady Gaga.

Lífið

Beggi Smári segir frá væntanlegri plötu

Fyrsta plata tónlistarmannsins Begga Smára nefnist Mood og kemur út á næstu dögum. Þar blandar hann saman blús, sálartónlist og poppi. Í meðfylgjandi myndskeiði segir Beggi stuttlega frá plötunni. Beggi heldur tónleika á Café Rosenberg í kvöld, þriðjudag, þar sem hann leikur lög af plötunni. Sjá nánar hér. Hér má hlusta á lagið Warm & strong af plötunni. Facebook síða Begga Smára.

Lífið

Arnold barnaði þjónustustúlkuna

Kvikmyndastjarnan og fyrrverandi ríkisstjóri Kalíforníu, Arnold Schwarzenegger, sem skildi nýverið við eiginkonu sína Mariu Shriver, eftir 25 ára hjónaband, hefur viðurkennt að hafa barnað þjónustustúlkuna þeirra fyrir áratug áður en hann bauð sig fram til ríkisstjóra. Arnold segist hafa sagt Mariu frá barninu eftir að hann hætti í embætti í janúar og hann segist hafa brugðist fjölskyldu og vinum allsvakalega. Að ekki sé minnst á Maríu sem hann hefur nú þegar beðið afsökunar.

Lífið

Útvarpsstarfið leyndur draumur

"Þetta er alveg hrikalega spennandi tækifæri og ég er með fiðrildi í maganum,“ segir Margrét Björnsdóttir, glænýr liðsmaður útvarpsstöðvarinnar FM957, en hún stjórnar þættinum Fjögur til sex á hverjum virkum degi ásamt Brynjari Má Valdimarssyni útvarpsmanni.

Lífið

Önnur plata Mógil

Hljómsveitin Mógil hefur sent frá sér plötuna Í stillunni hljómar. Platan var gefin út í Belgíu og Hollandi í mars og hefur fengið góða dóma þar. Einnig var nýlega fjallað um plötuna í tímaritinu The New York City Jazz Record. Mógil hefur áður gefið út plötuna Ró sem var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2008.

Lífið

Völdu besta Dylan-lagið

Like A Rolling Stone hefur verið kjörið besta lagið á ferli tónlistarmannsins Bobs Dylan. Það voru tónlistarmenn, rithöfundar og fræðimenn sem völdu lagið í könnun tímaritsins Rolling Stone í tilnefni af sjötugsafmælis Dylans 24. maí. Like A Rolling Stone er sex mínútur að lengd og samanstendur af þremur hljómum. Lagið kom út árið 1965 á plötunni Highway 61 Revisited. Í öðru sæti lenti lagið A Hard Rain"s Gonna Fall og í því þriðja varð Tangled Up in Blue. Í næstu sætum á eftir komu Just Like a Woman og All Along the Watchtower.

Lífið

Loksins fyrirsæta sem er ekki að farast úr hungri

Ég var í stærð 18/20 í framhaldsskóla og það var ekki það auðveldasta sem ég upplifði á þeim tíma, viðurkenndi Tara sem hefur setið fyrir í tímaritum eins og Elle, Glamour og V. Tara, sem er glæsileg og þokkafull eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, er sátt við líkama sinn í dag.

Lífið