Lífið

Ég held að það blundi illska í öllum

Glæsir eftir Ármann Jakobsson er ein umtalaðasta skáldsaga haustsins og hefur höfundinum verið hrósað í hástert fyrir frumleg efnistök og frásagnaraðferð. Sjálfur gefur hann lítið fyrir hugmyndina um frumleika en telur aftur á móti að það sem er satt um tíundu öld sé líka satt um okkar tíma.

Menning

Grét yfir bókarskrifunum

Steinunn Sigurðardóttir hélt að hún gæti aldrei skrifað bók um kynferðisbrot. Svo kom söguefnið í bókinni Jójó til hennar og þá varð ekki aftur snúið.

Menning

Kjóll Amy Winehouse á uppboði

Kjóllinn sem Amy Winehouse klæddist framan á plötunni Back to Black verður boðinn upp á næstu dögum og mun allur ágóðinn renna til góðgerðarstofnunar söngkonunnar. Talið er að kjóllinn, sem er úr siffoni með áprentuðu mynstri, muni seljast á allt að 3,5 milljónir króna. Uppboðshaldarinn sem fær heiðurinn af að selja flíkina sagði í viðtali við blaðamenn: „Það sem gerir þennan kjól svona sérstakan er að hann minnir okkur á hina töfrandi rödd Amy Winehouse. Það er rödd sem heil kynslóð á aldrei eftir að gleyma.“

Lífið

Hlýjar minningar frá hernámi

Systurnar fimm, sem ólust upp á Gunnarshólma á 4. og 5. áratug síðustu aldar, voru ærslafullar og uppátækjasamar. Þær prýða forsíðu bókarinnar Dagbók frá veröld sem var, sem sýnir myndir herljósmyndarans Emils Edgren frá Íslandi stríðsáranna.

Lífið

Sveppi er svo með´etta

Ef meðfylgjandi myndir eru skoðaðar má sjá að Sveppi gerði sér lítið fyrir og skellti sér á fjórar fætur til að þurrka upp kakó sem helltist óvart niður...

Lífið

Harry's vekur athygli

Filippseyski veitingastaðurinn Harry's er umfjöllunarefni blaðamanns The Philippine Star, fréttaveitu Filippseyinga á heimsvísu. Harry's er í öðru sæti yfir bestu veitingastaði borgarinnar á TripAdvisor.

Matur

Nokkrar best klæddu systur í heimi

Vogue valdi nýverið best klæddu systurnar og kemur það líklega fáum á óvart að tvíburasysturnar og fatahönnuðurnir Mary-Kate og Ashley Olsen hafi trónað á toppi listans.

Lífið

Kann lagatexta Biebers

Leikkonan Rachel Bilson sem sló í gegn í sjónvarpsþáttunum The OC segist kunna alla texta söngvarans Justins Bieber. Bilson á tvær hálfsystur á aldrinum tíu og fjögurra ára og segir þær báðar vera mikla aðdáendur ungstirnisins Justins Bieber. „Vegna þeirra kann ég alla textana við lög Justins, Taylor Swift og Selenu Gomez. Í staðinn kynnti ég þær fyrir The Princess Bride, sem er uppáhaldskvikmyndin mín. Við eyðum helgunum í að horfa á Disney-myndir saman,“ sagði leikkonan geðþekka.

Lífið

Langdregin vessaveisla

The Human Centipede 2 er langdregin og húmorslaus vessaveisla sem höfðar ekki einu sinni til markhóps síns, hryllingsmyndaáhugafólks.

Gagnrýni

Gettu betur ekki breytt í Útsvar

Minnstu munaði að í hart færi á milli stjórnenda Gettu betur hjá RÚV og stýrihóps framhaldsskólanema vegna breytinga sem voru á teikniborðinu í vetur.

Lífið

Gjafmildur leikari

Leikarinn Bradley Cooper er staddur í heimaborg sinni, Philadelphiu, um þessar mundir við tökur á kvikmyndinni The Silver Linings Playbook. Cooper ákvað að láta gott af sér leiða og eyddi mörg þúsund dollurum í úlpur, húfur, vettlinga og trefla handa heimilislausum. „Bradley tók eftir því að það var mikið af heimilislausu fólki að krókna úr kulda á götunum. Hann vissi að kuldinn átti aðeins eftir að verða meiri og ákvað því að kaupa kuldafatnað handa fólkinu,“ hafði The Enquirer eftir heimildarmanni. Eins og það sé ekki nóg þá hafði einn maðurinn orð á að honum þætti jakki Coopersfallegur og endaði það með því að leikarinn gaf manninnum jakkann.

Lífið

Heilsukokkur gefur út bók

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Eymundsson Skólavörðustíg í útgáfuteiti sem haldið var í tilefni af útkomu bókarinnar Heilsudrykkir eftir Auði Ingibjörgu Konráðsdóttur sem hefur getið sér gott orð sem heilsukokkur...

Lífið

Depp vill í Disneyland

Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera frægur. Johnny Depp þráir fátt heitar en að geta verið óþekktur í heilan dag svo hann geti farið óáreittur með börnin sín í Disneyland. Leikarinn segir að frægðin komi oft í veg fyrir að hann geti gert hversdagslega hluti með börnunum sínum tveimur, Lily-Rose og Jack, sem eru tólf og níu ára og þekkja því ekki annað en að eiga frægan pabba.

Lífið

Fær annað tækifæri í dansþætti

„Ég ætla mér að vinna þessa keppni og nota þessa milljón til að borga fyrir dansnám. Ég hef aldrei átt peninga fyrir dansnámi,“ segir Karl Emil Karlsson. Hann hefur fengið annað tækifæri í sjónvarpsþættinum Dans, dans, dans eftir að eitt dansparið forfallaðist. Hann verður því í sviðsljósinu í kvöld þegar þjóðin fær tækifæri til að láta í ljós sitt álit á því hvaða dansari sé bestur. Gestadómari kvöldsins verður Magnús Scheving, sem fetar þar með í fótspor Baltasars Kormáks, en leikstjórinn þótti fara á kostum í fyrsta þættinum.

Lífið

Fjölmenni í Skemmtigarðinum

Meðfylgjandi myndir voru teknar af gestum sem mættu í formlega opnun Skemmtigarðsins í Smáralind í gær þar sem áður var Vetrargarðurinn...

Lífið

Billy Crystal tekur við Óskarnum

Hinn 63 ára gamanleikari Billy Crystal hefur tekið að sér að vera kynnir við afhendingu Óskarsverðlaunanna. Crystal hleypur í skarðið fyrir Eddie Murphy en hann gaf frá sér verkefnið þegar leikstjórinn Brett Ratner neyddist til að hætta sem stjóri hátíðarinnar eftir að hafa látið niðrandi orð um samkynhneigða falla á blaðamannafundi og síðar í útvarpsþætti Howard Stern.

Lífið

Þýskur nafni Geirs Haarde

Á samskiptavefnum Facebook er þýskur nafni fyrrverandi forsætisráðherra Íslands, Geirs Haarde. Pilturinn er þýskur námsmaður sem kaus sér nafnið sem notandanafn á Facebook en í raun heitir hann sjálfur Alex Mannan.

Lífið

Smekklegt afmælisboð

Tímaritið Dazed & Confused hélt upp á tuttugu ára afmæli sitt um síðustu helgi. Fjöldi fólks mætti til að fagna þessum áfanga ásamt stofnendum blaðsins.

Lífið

Tölvuþrjótar ráðast á Steam

Kreditkorta- og persónuupplýsingar tæplega 35 milljón notenda tölvuleikjaþjónustunnar Steam eru í hættu. Þetta tilkynnti Gabe Newell, stofnandi og stjórnarformaður Valve.

Leikjavísir

Selja eigin hönnun fyrir námsferð

Við vissum að það væri dýrt að fara út í starfsnám og ákváðum því að taka höndum saman og hanna töskur og boli til að selja og reyna þannig að fjármagna ferðina okkar út,“ segir Áslaug Sigurðardóttir, nemandi á fyrsta ári í fatahönnun í Listaháskóla Íslands. Áslaug og bekkjarsystur hennar munu selja vörurnar á opnum degi í skólanum á morgun.

Tíska og hönnun

Gervais býður tvo fyrir einn

Ricky Gervais hefur boðið framleiðendum Golden Globe og Óskarsins svokallað tvo fyrir einn-tilboð, það sé nefnilega lítið mál fyrir hann að vera kynnir á báðum verðlaunahátíðunum. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum er Eddie Murphy hættur við að vera kynnir á Óskarnum eftir að leikstjórinn Brett Ratner hætti við að leikstýra hátíðinni. Ratner hafði þá orðið uppvís að meiðandi ummælum um samkynhneigða.

Lífið

Hefur aldrei hitt Íslending

Plötusnúðurinn Neil Armstrong kemur fram á Vegamótum í kvöld. Hann spilaði á tónleikaferðalagi Jay-Z um allan heim og hefur unnið með listamönnum á borð við Puff Daddy, Timbaland og Coldplay.

Lífið

Hugleikur tekur aftur fyrir erlenda stórsmelli

Hugleikur Dagsson hefur sent frá sér aðra Popular Hits-rassvasabók. Emilíana Torrini skrifar formála bókarinnar, en hún er einlægur aðdáandi Hugleiks. „Það er gott að gera myndasögur á ensku, vegna þess að fólk mun alltaf kaupa þær. Það eru alþjóðlegir lesendur,“ segir skopmyndateiknarinn og uppistandarinn Hugleikur Dagsson.

Lífið

Erpur og Raggi beita Seinfeld-brellu

Tónlistarmennirnir og félagarnir Ragnar Bjarnason og Erpur Eyvindarson auglýsa saman kaffi á skjáum landsmanna þessa dagana. Í auglýsingunum kafa þeir ofan í mannlegt eðli og í einni skýtur upp kollinum vísun í kunnuglegan sjónvarpsþátt.

Lífið

Djúp ljóska

Ég er eins og hafið af því að ég er mjög djúp, sagði Christina Aguilera, 30 ára...

Lífið