Harmageddon

Rokkprófið - Jónsi vs. Ólöf Jara

Jónsi í svörtum fötum vs. Ólöf Jara Skagfjörð söngkona.
Jónsi í svörtum fötum vs. Ólöf Jara Skagfjörð söngkona.
SPURNINGAR

1. Hefurðu aflýst tónleikum vegna eymsla í hálsi?

2. Hljómsveitarrútan bilar á ferð um mið-Evrópu. Hvað gerir þú?

3. Hvenær varstu síðast handtekinn?

4. Áttu óskilgetin afkvæmi í fleiri en fimm sýslum á Íslandi?

5. Ertu með nafn fyrrverandi elskhuga húðflúrað á þig?

6. Allir eiga leðurjakka, en átt þú leðurbuxur?

7. Ertu með númerið hjá Helga Björns í símanum þínum?

8. Myndirðu semja lag fyrir ímyndarauglýsingu NATÓ gegn ríflegri greiðslu?

9. Í kvikmynd um líf þitt, hvaða leikstjóri væri rétti maðurinn í starfið?

10. Björn Jörundur splæsir á barnum, hvað færðu þér?



Jónsi í Svörtum fötum, söngvari.

1. Nei, ég held að það sé bara fyrir aumingja. (1 stig)

2. Ég myndi hringja í Nikka á Eskifirði. Hann hefur reddað okkur þegar við höfum fest hljómsveitarrútuna í Öræfum. (1 stig)

3. Ég var seinast áminntur af lögreglunni fyrir að brjóta flösku fyrir utan Sjallann á Akureyri þegar ég var 19 ára. (1 stig)

4. Nei, en ég hef ótakmarkaðan aðgang að sjóskíðum bæði á Fáskrúðsfirði og í Reykjavík. (0 stig)

5. Nei, en ég er með kvennafar á handleggnum. Þetta er klórör eftir æstan dansleik á Akureyri þar sem kynning á gervinöglum var nýyfirstaðin. (1 stig)

6. Ég átti einu sinni leðurbuxur sem ég losaði mig við þegar þær voru tilbúnar til að segja eigið nafn, þær voru orðnar svo ógeðslegar. (1 stig)

7. Já, hann heitir Óli Týr þar. Þeir sem þekkja bransann þekkja þetta. Helgi Björns kallar sig Holy B og einhver svaraði á móti: „Hver er þessi Óli Týr?". (1 stig)

8. Nei, ég er svo lélegur í ensku. (1 stig)

9. Kevin Smith, hann er með miklu betri húmor heldur en ég. Hann getur sannað fyrir fólki að ég hafi einhvern tímann verið fyndinn. (1 stig)

10. Gin og tónik. (1 stig)

Ólöf Jara Skagfjörð söngkona

1. Nei, aldrei. Og mun aldrei gera. (1 stig)

2. Fer út í vegkant til að húkka far. The show must go on. (1 stig)

3. Hef aldrei verið handtekin. (0 stig)

4. Nei, en ég á nokkur í útlöndum. Telur það? (1 stig)

5. Nei, ekki enn þá. (0 stig)

6. Já, þrennar meira að segja. (1 stig)

7. Nei, en ég er með númerið hjá Magna. Æ, þarna gæjanum úr Rockstar... (1 stig)

8. Nei, ekki séns. (1 stig)

9. David Fincher. Svona kvenkyns Fight Club-mynd. (1 stig)

10. Viskí eða koníak. (1 stig)



NIÐURSTAÐA

Jónsi 9 stig

Ólöf Jara 8 stig








×