Samningur í verðlaun 3. febrúar 2012 15:00 Eskimo-stúlkan er ný fyrirsætukeppni á vegum Eskimo umboðsskrifstofunnar.
Eskimo-umboðsskrifstofan leitar nú að stúlkum til að taka þátt í nýrri fyrirsætukeppni er nefnist Eskimo-stúlkan 2012. Keppnin verður með öðru sniði en áður því sigurvegarinn fer ekki út í áframhaldandi keppni heldur kemst á samning hjá hinni virtu Next umboðsskrifstofu. Andrea Brabin, eigandi Eskimo, segir keppnina vera stökkpall fyrir stúlkur sem vilja reyna fyrir sér í fyrirsætustarfinu. „Verðlaunin eru með öðru sniði en gengur og gerist, stúlkan fer ekki út í aðra keppni heldur fær samning beint héðan við Next. Sú sem sigrar fær flug til New York í boði Next Models, gistingu í einni af módelíbúðum stofunnar og minnst þrjár tökur með reyndum ljósmyndurum. Þarna gefst þeim því tækifæri til að kynnast þessum heimi, öðlast reynslu og byggja upp möppu." Þá hlýtur sigurvegarinn hundrað þúsund króna peningaverðlaun ásamt forsíðumyndatöku fyrir vefritið Nude Magazine. Fyrirsæturnar Anja Rubik og Abbey Lee eru á meðal þeirra heimsþekktu fyrirsæta sem eru á skrá hjá Next auk Brynju Jónbjarnardóttur, Kolfinnu Kristófersdóttur og Elmars Johnson. „Við höfum lengi verið í samstarfi við Next og því þótti okkur eðlilegt skref að vinna með þeim að keppninni. Aðaldómari kvöldsins verður svo Jason Valenta, helsti útsendari Next Models World Wide." Leitað er að stúlkum frá fjórtán ára aldri og þurfa þær að vera minnst 170 sentimetrar að hæð. Nánari upplýsingar er hægt að fá í gegnum vefpóstinn eskimo@eskimo.is. -sm
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira