Umdeild sem ungfrú Svínka 5. febrúar 2012 11:00 Margrét Erla í gervi Svínku á Prúðuleikaramyndinni. Húwn fékk misjöfn viðbrögð við uppátækinu. „
Það var rosalega gaman að gera þetta,“ segir Kastljósskonan Margrét Erla Maack. Hún klæddi sig upp sem ungfrú Svínka þegar hún sá Prúðuleikarana í bíó fyrir skömmu. Með henni í för var vinur hennar sem var í gervi bjarnarins Fossa. Fleiri vinir þeirra ætluðu að koma með í búningum en heltust úr lestinni. „Þegar það kom í ljós að Prúðuleikaramyndin væri að koma urðum við bæði mjög spennt. Þá sögðum við meira í gríni en alvöru að við skyldum fara í búningum á myndina,“ segir Margrét Erla, sem fékk misjöfn viðbrögð þegar hún mætti í bíóið sem Svínka með gervinef á andlitinu. „Það voru krakkar í bíóinu sem fannst þetta ógeðslega fyndið en fullorðna fólkið átti mjög erfitt með þetta,“ segir hún. „Aðaltilgangurinn með þessu var að gleðja sjálfa mig en líka að gleðja einhverja aðra í leiðinni en fólk horfði á mig eins og ég væri skrítin.“ Margrét Erla hefur alla tíð verið mikill aðdáandi Prúðuleikaranna. „Já, þetta gengur í erfðir. Mamma og pabbi eru miklir Prúðuleikaraaðdáendur og þau fóru alltaf sérstaklega í heimsókn til ömmu og afa því þau áttu litasjónvarp,“ segir hún og hlær. Henni fannst myndin virkilega góð. „Hún stóð fyllilega undir væntingum. Það hefði verið leiðinlegt að vera í búningi ef myndin hefði verið léleg.“ Margrét hefur áður klætt sig upp ásamt vinum sínum fyrir bíósýningar, eða fyrir King"s Speech þar sem hún var klædd eins og hefðarfrú og fyrir Star Wars. „Þetta er ógeðslega gaman. Þetta gerir meira úr venjulegri bíóferð. Það er orðið svo dýrt í bíó að maður verður að búa til aðeins meiri athöfn í kringum þetta.“ - fb
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira