Erlent

Hollensku lögin rýmkuð

Hollenska ríkisstjórnin ætlar sér að auka við lög um líknardráp þar í landi, og setja viðmiðunarreglur um hvenær læknar megi binda enda á líf dauðvona nýbura, séu foreldrar samþykkir því.

Erlent

Hollensku lögin rýmkuð

Hollenska ríkisstjórnin ætlar sér að auka við lög um líknardráp þar í landi, og setja viðmiðunarreglur um hvenær læknar megi binda enda á líf dauðvona nýbura, séu foreldrar samþykkir því.

Erlent

50 látnir - 100 særðir

Að minnsta kosti 50 manns eru sagðar látnir og 100 særðir eftir að röð bílsprengna sprakk norður af Bagdad fyrir stundu. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um ódæðið að svo stöddu.

Erlent

Mannskætt rútuslys í Perú

Að minnsta kosti átján manns létust og 40 slösuðust þegar tvær rútubifreiðar lentu í árekstri á hraðbraut í Perú í gærkvöld. Slysið varð 270 kílómetra suður af höfuðborginni Lima þegar önnur rútan reyndi að fara fram úr bíl en ók þá í veg fyrir aðra rútu sem kom úr gagnstæðri átt.

Erlent

Nýr landsstjóri í Kanada

Michaëlle Jean sór í gær embættiseið sem nýr landsstjóri í Kanada en hún er fyrsti blökkumaðurinn sem gegnir þessu embætti. Skipan hennar hefur verið vel tekið víðast hvar í Kanada en var þó ekki óumdeild. Landsstjórinn er fulltrúi Bretadrottningar sem er eiginlegur þjóðhöfðingi Kanada.

Erlent

Hyggjast banna ruslfæði í skólum

Ruth Kelly, menntamálaráðaherra Bretlands, tilkynnir í dag á þingi Verkamannaflokksins að til standi að banna allt ruslfæði í breskum skólum innan árs í viðleitni til að bæta heilsu breskra barna. Umræða um hollari máltíðir í skólum komst í hámæli í kosningunum í Bretlandi í vor en þá vakti sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver athygli á málinu og hefur hann leitt baráttuna fram til þessa.

Erlent

Írakar reiðir vegna dóms

Reiði braust út meðal almennings í Írak þegar kunnugt varð að Lynndie England fengi aðeins þriggja ára fangelsisdóm fyrir að misþyrma og niðurlægja írakska fanga í Abu Ghraib fangelsinu.

Erlent

Harka gegn Hamas

Ísraelsher hélt áfram hernaðaraðgerðum sínum í gær gegn herskáum Palestínumönnum. Ísraelar segja hörkuna nauðsynlega en Hamas telur að verið sé að veikja samtökin í pólitísku tilliti.

Erlent

Sækja í lífsgæðin í Evrópu

Þúsund innflytjendur frá fátækum ríkjum Afríku réðust á varnargirðingu milli Spánar og Marokkós til að freista þess að öðlast betri lífsgæði í Evrópu. Girðinguna reistu Spánverjar til að halda frá ólöglegum innflytjendum frá fátækum ríkjum suðlægrar Afríku sem reyna að flýja eymdina í heimalandinu.

Erlent

Leituðu músar í flugvél

Heldur óvenjulegur laumufarþegi fannst í flugvél á vegum Qatar Airways þegar verið var að undirbúa flugtak frá flugvellinum í Maníla á dögunum. Einn úr áhöfinni kom þá auga á litla mús sem skaust á milli sæta í farþegarými vélarinnar. Flugstjórinn greip til þess ráðs að skipa öllum 250 farþegunum að fara út út vélinni á meðan reynt var að ná nagdýrinu.

Erlent

Talíbanar lýsa yfir ábyrgð

Talíbanar hafa lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðssprengjuárásinni sem gerð var á afganskar hersveitir í Kabúl í dag. Níu létust og tuttugu og sjö særðust í árásinni.

Erlent

Skortur á iðrun kostnaðarsamur

Reiði og streita í kjölfar bílslysa kostar bresk tryggingfélög og bíleigendur miljónir punda á hverju ári. Nýleg bresk rannsókn bendir til þess að skortur á iðrun og þá afsökun ökumanna sem valda umferðaslysum leiði til þess að ökumenn ýkja bæði líkamlega áverka og tjón á farartækjum.

Erlent

Tilbúnir til viðræðna við Taívana

Kínversk stjórnvöld segjast tilbúin hvenær sem er til að hefja viðræður við Taívan um samband þessara tveggja þjóða. Li Wei Yi, talsmaður Kína í málum Taívana, sagði í yfirlýsingu sem stjórnvöld sendu frá sér í gær að mikilvægt væri fyrir báða aðila að gott samkomulag væri þarna á milli og að unnið yrði í því að bæta þau.

Erlent

Rangfærslur í fréttum

Danska útvarpsréttarnefndin hefur áminnt ríkisreknu sjónvarpsstöðina TV2 fyrir að birta fréttir um glæpagengi innflytjenda sem beinlínis voru byggðar á rangfærslum.

Erlent

Hryllingssögur hafi verið ýktar

Komið hefur í ljós að hryllingssögur frá New Orleans í kjölfar þess að fellibylurinn Katrín reið yfir suðurströnd Bandaríkjanna voru orðum auknar eða jafnvel uppspuni frá rótum. Þetta þykir áfall fyrir bandaríska fjölmiðla.

Erlent

Ýkjur einkenndu fréttaflutninginn

Heimsbyggðin fylltist óhug eftir að hafa heyrt fréttaflutning af afleiðingum fellibylsins Katrínar. Nú er hins vegar að koma í ljós að fréttirnar voru í mörgum tilvikum meira í ætt við tröllasögur en raunverulegar lýsingar á því sem gerðist.

Erlent

Vara við flóðum vegna fellibyls

Yfirvöld í Víetnam gáfu í dag út flóðaviðvaranir í kjölfar þess að fellibylurinn Damrey reið yfir norður- og miðhluta landsins. Þegar hafa fimm látist af völdum fellibylsins í landinu. Yfirvöld höfðu komið upp sjóvarnargörðum til þess að reyna að koma í veg fyrir flóð vegna fellibylsins en skörð komu í garðana þannig að það flæddi m.a. yfir hrísgrjónaakra á svæðinu.

Erlent

Enga óhollustu í breskum skólum

Nemendur í breskum skólum mun innan árs aðeins vera borinn á borð hollur matur í skólamötuneytum. Banna á allan fituríkan mat, saltan og sykraðan í mötuneytum í enskum skólum og jafnframt alla sjálfsala sem selja gos og sælgæti.

Erlent

Lynndie fékk þriggja ára dóm

Herréttur í Texas dæmdi í fyrrakvöld Lynndie England í þriggja ára fangelsi fyrir að niðurlægja og misþyrma föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak.

Erlent

Viðræður hefjast á ný í Þýskalandi

Gerhard Schröder, leiðtogi Jafnaðarmanna, og Angela Merkel, leiðtog Kristilegra demókrata, hefja í dag aftur viðræður um myndun samsteypustjórnar í Þýskalandi í kjölfar kosninga til þýska sambandsþingsins 18. september síðastliðinn. Viðræður hófust í síðustu viku en upp úr þeim slitnaði þar sem bæði Merkel og Schröder gerðu bæði tilkall til kanslaraembættisins, en fylkingar þeirra fengu svipað fylgi í kosningunum.

Erlent

Damrey veldur meiri usla

Tólf lágu í valnum eftir að fellibylurinn Damrey fór yfir Víetnam í gær. Alls hafa 46 látist af völdum óveðursins í Suðaustur-Asíu.

Erlent

Aftur ráðist á ráðningarstöð

Að minnsta kosti sjö létust og 37 særðust þegar kona sprengdi sig í loft upp við ráðningarstöð írakska hersins í bænum Tal Afar nærri landamærum Sýrlands í dag. Nokkur fjöldi manna var á staðnum að skrá sig í herinn þegar árásin var gerð, en sams konar árás var gerð við ráðningarstöð í bænum Bakúba í gær. Þar létust tíu og 30 særðust.

Erlent

Sekur um samsæri

"Ég hef ekkert gert af mér. Ég er saklaus," sagði repúblíkaninn Tom DeLay á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í Washington í gær. DeLay þurfti að yfirgefa stöðu sína sem forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær eftir að kviðdómur í Texas úrskurðaði hann sekan um samsæri og lögbrot í fjármögnun á kosningabaráttu.

Erlent

Tekinn af lífi fyrir morð

Alan Matheney var tekinn af lífi í Indiana í Bandaríkjunum í nótt að íslenskum tíma. Matheney var dæmdur til dauða fyrir morðið á fyrrverandi eiginkonu sinni. Morðið framdi hann árið 1989 þegar hann fékk átta klukkustunda langt leyfi úr fangelsi þar sem hann afplánaði fyrri fangelsisdóm fyrir að hafa ráðist á eiginkonuna fyrrverandi, nauðgað henni og skilið eftir nær dauða en lífi.

Erlent

Tekinn af lífi

Yfirvöld í Indiana tóku í fyrrinótt Alan Matheney af lífi með eitursprautu en hann var dæmdur til dauða fyrir morðið á fyrrverandi eiginkonu sinni árið 1989.

Erlent

Næstæðsti maður al-Qaida drepinn

Bandarískar og íraskar öryggissveitir hafa ráðið annan valdamesta yfirmann innan hryðjuverkasamtakanna al-Qaida í Bagdad af dögum. Abdullah Abu Azzam er talinn hafa skipulagt fjölda sjálfsmorðsárása í borginni síðan í apríl sem orðið hafa hundruðum að bana en fimmtíu þúsund dollarar voru settir honum til höfuðs eða rúmlega þrjár milljónir króna.

Erlent

England dæmd í 3 ára fangelsi

Lynndie England, sem í gær var fundin sek um að hafa misþyrmt og niðurlægt íraska fanga í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad, hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi. Baðst England afsökunar á framferði sínu eftir að dómurinn var kveðinn upp en sagðist jafnframt hafa gert það að undirlagi þáverandi unnusta síns, sem einnig var hermaður.

Erlent

Birgja sig upp af fuglaflensulyfi

Yfirvöld á Taílandi hafa komið sér upp miklum birgðum af lyfinu Tamiflu sem er eina þekkta lyfið sem hægt er að nota gegn fuglaflensu í mönnum. Með þessu vilja stjórnvöld vera við öllu búin ef veikin verður að faraldri í landinu, en fuglaflensa greindist í fólki í landinu á síðasta ári.

Erlent

Varar við auknu ofbeldi í Írak

George Bush Bandaríkjaforseti varaði í dag við auknu ofbeldi í Írak á næstunni, eða þar til kosið yrði um nýja stjórnarskrá landsins. Sex fórust og þrjátíu særðust þegar kona sprengdi sig í loft upp við skráningarstöð írakska hersins við landamæri Sýrlands í dag.

Erlent