Erlent
Mannlegir skildir í Palestínu Amerískur prestur og nunna, eru komin í hóp palestínumanna sem hafa slegið skjaldborg um heimili á Gaza svæðinu, til þess að hindra að ísraelski flugherinn geri loftárás á húsið. Presturinn sagði að Guð hefði sent þau til þess að vernda Palestínumenn. Erlent 22.11.2006 13:33
Talibanar undirbúa nýja sókn í Afganistan Einn af æðstu herforingjum talibana, í Afganistan, segir að þeir séu að undirbúa nýjar árásir á stjórnarher landsins og friðargæslusveitir NATO, þegar snjóa leysir næsta vor. Bardagar við talibana hafa verið harðari á þessu ári en nokkrusinni síðan þeir voru hraktir frá völdum árið 2001. Erlent 22.11.2006 13:00
Hringdi bjöllunni á Wall Street Sérstakur Íslandsdagur var haldinn í Kauphöllinni við Wall Street í New York í gær. þar sem Geir Haarde forsætisráðherra hringdi bjöllu stofnunarinnar og lokaði þannig viðskiptadeginum. Erlent 22.11.2006 12:45
Höfuðborg Kýpur loks laus við sprengjur Kýpverjar fögnuðu í dag þegar höfuðborg þeirra, Níkósía, var jarðsprengjuleit var loks hætt í borginni og hún lýst sprengjulaus. Leitað hefur verið að jarðsprengjum í borginni í rúma þrjá áratugi, allt frá stríðinu árið 1974, sem varð til þess að eyjunni var skipt í tvennt. En markmiðið sem náðist í dag er aðeins áfangasigur á leiðinni að því að sprengjuhreinsa alla eyjuna. Erlent 22.11.2006 12:45
Indónesía fellst á friðargæslu í Írak Indónesía, hefur ljáð máls á því að senda friðargæsluliða til Íraks, og hvetja önnur múslimaríki til þess að gera slíkt hið sama. Erlent 22.11.2006 12:43
Óttast áframhaldandi víg Líbanskir stjórnmálamenn óttast að fleiri víg muni fylgja í kjölfar morðsins á Pierre Gemayel iðnaðarráðherra í gær. Þriggja daga þjóðarsorg hófst í landinu í morgun. Erlent 22.11.2006 12:30
Tvísýnar kosningar í Hollandi Útlit er fyrir að afar mjótt verði á mununum í hollensku þingkosningunum sem fram fara í dag. Valið stendur á milli áframhaldandi hægristjórnar Jan Peters Balkenende, sem náð hefur árangri í efnahagsmálum en jafnframt fylgt umdeildri stefnu í innflytjendamálum, og fylkingar jafnaðarmanna undir forystu Wouters Bos. Erlent 22.11.2006 12:11
Friði fagnað í Nepal Mikil fagnaðarlæti hafa verið um gjörvallt Nepal eftir að friðarsamningur var undirritaður þar i gærkvöldi. Almenningur hefur flykkst út á götur og fjölmiðlar eru uppfullir af bjartsýnum fyrirsögnum. Friðarsamkomulagið bindur enda á 10 ára uppreisn Maóista gegn ríkisstjórninni og konungsfjölskyldunni. Erlent 22.11.2006 11:38
Ritarar jólasveinsins auralausir Stórir póstsekkir með bréfum til jólasveinsins, óskalistum, teikningum og persónulegum bréfum frá börnum um víðan heim, safna nú ryki á pósthúsi á Grænlandi. Hið opinbera er nefnilega hætt að greiða fyrirtækinu sem sá um ritarastörfin fyrir jólasveininn, sem hefur vitanlega sjálfur margt á sinni könnu. Erlent 22.11.2006 11:11
Páfi fordæmir launmorðið í Líbanon Benedikt sextándi páfi fordæmdi í morgun launmorð á iðnaðarráðherra Líbanons, Pierre Gemayel, sem var einn valdamesti stjórnmálaleiðtogi kristinna maróníta í Líbanon. Hann kallaði morðið grófa árás og hvatti Líbana til að "vara sig á dörkum öflum sem reyndu að eyðileggja landið. Erlent 22.11.2006 10:59
Dætur Bush rændar Önnur tvíburadætra Georges Bush, forseta Bandaríkjanna, var rænd veski sínu og farsíma á veitingahúsi í Bueons Aires um síðustu helgi. Lífverðir bandarísku leyniþjónustunnar urðu einskis varir. Erlent 22.11.2006 10:24
Koparæði ógnar lífi lestarfarþega í Ástralíu Nýtt gullæði er skollið á í Ástralíu, sem ætti reyndar með réttu að kallast koparæði, sem ógnar lestarfarþegum á áströlskum teinum. Bíræfnir þjófar læðast inn á teinana í skjóli nætur og stela koparvírum sem hanga í loftinu fyrir ofan teinana, sem getur valdið alvarlegum lestarslysum. Lögreglan í Melbourne sá sig til neydda í síðustu viku að setja sérstaka koparvakt. Erlent 22.11.2006 10:02
Býst við fleiri launmorðum í Líbanon Leiðtogi drús trúarhópsins í Líbanon, Walid Jumblatt, sagði í morgun að hann byggist allt eins við fleiri pólitískum launmorðum á ráðherrum og þingmönnum sem beinist gegn meirihlutanum í þinginu. Þetta sagði hann á blaðamannafundi í morgun, degi eftir að leiðtogi kristins stjórnmálaflokks var ráðinn af dögum í gær. Erlent 22.11.2006 09:49
Dauðsföll í Írak aldrei fleiri í einum mánuði Dauðsföll í Írak hafa ekki verið fleiri en í nýliðnum októbermánuði síðan Bandaríkjamenn réðust inn í Írak árið 2003 og rösklega 2 milljónir manna hafa flúið heimili sín að sögn Sameinuðu þjóðanna. Alls létust 3.709 manns í október, en fyrra fjöldamet var frá því í júlí þegar 3.590 manns féllu í átökum í landinu. Erlent 22.11.2006 09:39
Blaine reynir að losa sig úr snúningshringjum Töframaðurinn David Blaine lét í gær festa sig í snúningshringi og hífa upp í 15 metra hæð yfir Times torgi í New York og mun hann hanga þar fram á föstudagsmorgun. Hann fékk ungan dreng til að ýta í hringina til að koma þeim á hreyfingu og rúllar hann viðstöðulaust eftir það. Erlent 22.11.2006 09:00
Leikstjórinn Altman allur Leikstjórinn Robert Altman, húmoristinn kaldranalegi á bak við þættina M-A-S-H, Nashville auk fjölda kvikmynda, lést á mánudag, áttatíu og eins árs að aldri. Altman var fimm sinnum tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leikstjórn, síðast árið 2001 fyrir myndina Gosford Park. Honum hlotnuðust heiðursverðlaun á síðustu Óskarsverðlaunahátíð. Erlent 22.11.2006 08:45
Starfsmönnum Rauða krossins á Gaza sleppt úr haldi Tveimur ítölskum starfsmönnum Rauða krossins sem rænt var á Gaza-svæðinu í gærdag var sleppt ómeiddum úr haldi mannræningjanna rétt eftir miðnætti í nótt. Samtökin tilkynntu í framhaldi af því að öllum verkefnum Alþjóða Rauða krossins á svæðinu yrði hætt þar til annað kæmi í ljós. Erlent 22.11.2006 08:15
Neyðarfundur um morð á líbönskum ráðherra Stjórnmálamenn úr 14 flokkum, bæði múslimar og kristnir og hvort tveggja andstæðingar og áhangendur Sýrlandsstjórnar hittust á lokuðum neyðarfundi í Beirút í Líbanon í gær, til þess að ræða morðið á iðnaðarráðherra Líbanons og einum helsta leiðtoga kristinna maróníta í landinu. Erlent 22.11.2006 07:45
Óttast um 15 námamenn í Póllandi Átta námamenn eru látnir í námaslysi í Póllandi og vonir um að 15 til viðbótar bjargist á lífi dvína með hverri stund sem líður. Þeir eru fastir á 1000 metra dýpi eftir sprengingu í námunni í gærdag og er súrefni af skornum skammti þar sem loftræstileiðslur skemmdust í sprengingunni. Björgunarmenn reyna nú að ryðja um 500 metra löng göng til að komast til þeirra sem enn eru á lífi. Erlent 22.11.2006 07:15
Byssumenn á hraðbátum rændu olíuverkamönnum í Nígeríu Talið er að nígerískir skæruliðar hafi tekið nokkra olíuiðnaðarmenn sem gísla um borð í skipi á hafi úti í morgun. Vitni segja að mennirnir hafi komið vopnaðir að skipinu á nokkrum hraðbátum og tekið skipverja í gíslingu. Það er ekki óalgengt að erlendum olíuverkamönnum sé rænt í Nígeríu og lausnargjalds krafist. Þeim er yfirleitt sleppt ef lausnargjald er greitt. Erlent 22.11.2006 07:04
Trúarleiðtogi ákærður fyrir nauðgun Í Utah fylki í Bandaríkjunum standa nú yfir réttarhöld yfir trúarleiðtoga einum en hann er ákærður fyrir aðild að nauðgun þar sem hann neyddi 14 ára stúlku til þess að giftast 19 ára strák, en þau eru systkinabörn. Söfnuðurinn sem hann leiðir trúir því að fyrir fjölkvæni verði maður verðlaunaður á himnum. Erlent 21.11.2006 23:26
Forsætisráðherra í heimsókn í Kauphöllinni í New York Geir H. Haarde heimsótti í dag Kauphöllina í New York á sérstökum Íslandsdegi í henni. Þórður Friðjónsson forseti hinnar íslensku kauphallar var honum til halds og trausts sem og Björgólfur Thor Björgólfsson. Á heimsóknin að hvetja til fjárfestinga á íslenskum markaði. Hringdi Geir meðal annars bjöllunni sem þar er til þess að marka lok viðskiptadags Kauphallarinnar. Erlent 21.11.2006 22:49
Búið að frelsa starfsmenn Rauða krossins Búið er að leysa báða ítölsku starfsmenn Rauða krossins úr haldi en þeim var rænt fyrr í dag en palenstínsk öryggisyfirvöld skýrðu frá því rétt í þessu. Sögðu þau að náðst hefði samband við mannræningjana og í framhaldi af því hefði tekist að frelsa mennina tvo. Erlent 21.11.2006 22:19
Neyðarástand í Horni Afríku Allt að 1,8 milljón manns hafa þurft að flýja heimili sín eða orðið fyrir áhrifum vegna flóða í Kenía, Sómalíu og Eþíópíu, en það svæði er oft nefnt Horn Afríku, en miklar rigningar hafa geysað þar að undanförnu. Erlent 21.11.2006 21:53
Dómstóll í máli al-Hariri væntanlegur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt drög að sérstökum alþjóðlegum dómstól sem mun rétta í morði fyrrum forsætisráðherra Líbanons, Rafik al-Hariri. Þessar aðgerðir af hálfu öryggisráðsins, sem voru lagðar fyrir Kofi Annan í kvöld, þýða að líbanska ríkisstjórnin þarf eingöngu að leggja blessun sína yfir dómstólinn til þess að hann geti hafið störf sín. Erlent 21.11.2006 21:31
David Blaine hangir á bláþræði Töframaðurinn David Blaine lét í dag hengja sig í 15 metra hæð yfir Times torgi í New York og mun hann hanga þar fram á föstudagsmorgunn er hann ætlar sér að losa sig sem snöggvast og hjálpa þannig fjölskyldum sem Hjálpræðisherinn þar í borg hefur ákveðið að styrkja til jólainnkaupa. Erlent 21.11.2006 21:17
Talið að átta hafi látið lífið í námuslysi í Póllandi Talið er að allt að átta manns hafi látið lífið í námuslysi sem varð nálægt bænum Ruda Slaska en pólsk sjónvarpsstöð skýrði frá því rétt í þessu. Í fyrstu var talið að einn hefði látist og að 23 væru fastir í námunni en slysið varð vegna gassprengingar um einum kílómeter undir yfirborði jarðar. Pólska lögreglan gat ekki staðfest fjölda látinna. Erlent 21.11.2006 21:04
Rauði krossinn hættir starfsemi á Gaza um óákveðin tíma Rauði krossinn hefur stöðvað starfsemi sína á Gaza svæðinu um óákveðin tíma þar sem tveimur starfsmönnum hans var rænt í dag en talsmaður Rauða krossins í Mið-Austurlöndum skýrði frá þessu fyrir stuttu. Unnu mennirnir fyrir ítalska Rauða krossinn. Erlent 21.11.2006 20:27
Bankaeigandi myrtur í Rússlandi Meðeigandi lítils banka í Rússlandi var myrtur í Moskvu í dag. Þetta kom fram í fréttum frá Interfax fréttastofunni og hefur hún heimildarmenn innan rússnesku lögreglunnar. Maðurinn hét Konstantin Meshceryakov og var skotinn í höfuðið fyrir utan heimili sitt. Erlent 21.11.2006 20:20
Annað tilræði í Gaza Byssumaður skaut á og særði fyrrum ráðherra í stjórn Palestínu nú rétt í þessu. Ráðherrann heitir Abdel Aziz Shahin og er háttsettur í hinni hófsömu Fatah hreyfingu. Hann hefur líka verið mjög virkur í gagnrýni sinni á Hamas-samtökin að undanförnu. Ekki hefur enn tekist að staðfesta hversu alvarlegt ástand fyrrum ráðherrans er. Árásin átti sér stað á Gaza svæðinu. Erlent 21.11.2006 19:23