Erlent

Vetrarveður veldur usla á meginlandi Evrópu

Vetrarveður hefur valdið töluverðum usla í Norður- og Mið-Evrópu í dag og eru þrír látnir í umferðarslysum í Þýslandi sem rekja má til hálku á vegum. Þá eru tugir slasaðir í landinu.

Erlent

Forseti Ísraels í launalaust leyfi

Moshe Katsav forseti Ísraels tilkynnti ísraelska þinginu í dag að hann myndi taka launalaust leyfi. Forseta þingsins var tilkynnt um ákvörðunina eftir að saksóknarar tilkynntu að þeir ætluðu að ákæra Katsav fyrir nauðgun og röð annarra kynferðisglæpa.

Erlent

Biður um meira svigrúm

Bush Bandaríkjaforseti bað þjóð sína um að gefa sér meiri tíma til að ná árangri í Írak í stefnuræðu sinni í gær. Stjórn hans ætlar að beita sér fyrir því að á næstu tíu árum dragi Bandaríkjamenn úr olíunotkun sinni um fimmtung.

Erlent

Red Hot Chili Peppers á Hróarskeldu

Skipuleggjendur Hróarskelduhátíðarinnar voru að tilkynna að Red Hot Chili Peppers yrðu eitt stærsta nafnið á hátíðinni nú í sumar. Kaliforníska rokksveitin hefur einu sinni áður spilað í Hróarskeldu.

Erlent

Jade Goody í kuldanum eftir Big brother

Breska sjónvarpsstjarnan Jade Goody reynir nú að klóra í bakkann eftir umtalaða þáttaröð raunveruleikaþáttarins Big brother. Hún skapaði sér mikla óvild í þáttunum með stríðni og dónaskap við indverska leikkonu og var sökuð um kynþáttahatur. Sjónvarpsstöðin Living TV og ilmvatnsframleiðandi sem var í samstarfi við hana hafa sagt upp samningum.

Erlent

Vínræktarhéraðið Skandinavía

Danmörk og Svíþjóð verða eitt besta hvítvínssvæði í heimi í framtíðinni þegar andrúmsloftið hlýnar. Þetta er álit vínsérfræðinga og loftslagsfræðinga sem Los Angeles Times spurði álits. Þá verður Þýskaland eitt virtasta rauðvínsland heims.

Erlent

Reikna með að Kínverjar verði fjölmennastir á netinu

Internetnotendur í Kína gætu orðið fleiri en nettengdir Bandaríkjamenn innan tveggja ára, að mati Kínversku netstofnunarinnar. Þá yrðu Kínverjar fjölmennasta þjóðin á netinu. 137 milljónir Kínverja voru nettengdar í lok árs 2006, sem er 23% fjölgun frá árinu á undan. Þeir eiga samt enn langt í land að ná Bandaríkjamönnum með sína 210 milljón netnotendur.

Erlent

Þrýst á um afsögn ísraelska forsetans

Mjög er þrýst á um að Moshe Katsav, forseti Ísraels, segi af sér embætti. Ríkissaksóknari tilkynnti í gær að hann væri að undirbúa ákæru á hendur forsetanum, vegna nauðgana og annarra kynferðisglæpa. Enn er þó ekki meirihluti fyrir því í ísraelska þinginu að knýja forsetann til uppsagnar. Frá þessu greinir ísraelska blaðið Haaretz.

Erlent

Ekki flogið til Prag vegna snjóþyngsla

Öllu flugi hefur verið aflýst til og frá alþjóðaflugvellinum í Prag í Tékklandi vegna snjóþyngsla. Ekki verður athugað með flug fyrr en í fyrsta lagi fjögur í eftirmiðdaginn. Veðurspáin gerir ráð fyrir áframhaldandi ofankomu. Einnig hefur verið ófært á aðalhraðbrautinni sem tengir Prag við austurhluta landsins.

Erlent

Dómarar forðist fangelsisdóma

Bresk stjórnvöld hafa beðið þarlenda dómara að dæma ekki í fangelsi nema alhörðustu glæpamennina, vegna klefaskorts í fangelsum. Fangafjöldi í Bretlandi er nú að nálgast hámarksgetu fangelsanna, sem er 80 þúsund fangar. Í bréfi til dómaranna eru þeir hvattir til að íhuga frekar sektir og annars konar refsingu.

Erlent

Hundabjór kominn á markaðinn

Umhyggjusamir hundaeigendur sem vilja gera vel við besta vininn geta nú hellt bjór í drykkjarskálina við hátíðleg tækifæri. Eigandi hollenskrar gæludýrabúðar hefur þróað sérstakan hundabjór úr kjötseyði og malti, sem kom á markaðinn í síðustu viku. Drykkurinn er sérhannaður fyrir dýrin, áfengislaus og goslaus.

Erlent

Flugræningi með AK47 riffil

Súdanskur flugræningi sem rændi farþegavél, sem lagði upp frá Kartúm í Súdan í morgun, hefur gefist upp og beðist hælis í franska sendiráðinu í Tsjad. Flugræninginn var ekki með nein haganlega gerð smávopn eða vel falda sprengju til að ógna áhöfninni, heldur AK47 hríðskotariffil. 103 voru um borð í vélinni sem er af gerðinni Boeing 737.

Erlent

Skotið á menntamálaráðherra Íraks

Bílalest menntamálaráðherra Íraks varð fyrir skothríð á hraðbraut sunnan Bagdad á miðvikudag. Einn af öryggisvörðum ráðherrans lést og annar er alvarlega særður með skotsár á höfði. Ráðherrann sjálfan sakaði ekki.

Erlent

Engin stórtíðindi í stefnuræðu Bush

Bush Bandaríkjaforseti hélt sjöttu stefnuræðu sína í bandaríska þinginu í gær, þá fyrstu í návist þingmeirihluta demókrata. Forsetinn tilkynnti engar mikilvægar stefnubreytingar, utan að setja markið á 20% minni eldsneytisneyslu eftir tíu ár. Þá bað hann þingið um að sýna Íraksstefnu sinni þolinmæði.

Erlent

Eldar loga í Beirút

Beirút, höfuðborg Líbanon, logaði í átökum í gær í kjölfar þess að Hizbollah-samtökin hvöttu fólk til að leggja niður störf í mótmælaaðgerðum gegn stjórnvöldum sem þeir telja of höll undir Bandaríkin.

Erlent

Krefjast frjálsara samfélags

Tugir þúsunda manna gengu um götur Istanbúl í gær og kölluðu eftir frjálsara tyrknesku samfélagi þar sem fólk væri ekki myrt vegna skoðana sinna.

Erlent

Hryðjuverkaforsprakki drepinn

Khadaffy Janjalani, leiðtogi Abu Sayyaf-hryðjuverkahópsins, lést í átökum við hermenn 4. september 2006, að sögn yfirvalda á Filippseyjum. Þetta staðfesti DNA-próf í Bandaríkjunum.

Erlent

Ofbeldisalda gekk yfir Líbanon í gær

Það sem áttu að vera friðsöm mótmæli Hizbollah-samtakanna gegn stjórnvöldum í Líbanon snerust upp í verstu ofbeldis-öldu síðan samtökin hófu herferð sína gegn ríkisstjórninni fyrir tveim mánuðum.

Erlent

Feykti dádýri í sjálfheldu í land

Flugmaður sjónvarpsfréttaþyrlu í Oklahoma-ríki í Bandaríkjunum kom dádýri til hjálpar á afar nýstárlegan hátt á miðvikudaginn var. Dádýrið var í sjálfheldu á ísilögðu vatni og komst ekki upp, en með hjálp þyrluspaðanna feykti flugmaðurinn því í land. Þetta kemur fram á fréttavef sjónvarpsstöðvarinnar CNN.

Erlent

Eþíópía kallar herlið sitt heim

Eþíópía hóf að flytja herlið sitt út úr Sómalíu í gær. Sérfræðingar hafa áhyggjur yfir því að brotthvarf Eþíópíuhers úr landinu geti leitt til stjórnleysis og endurkomu ofríkis stríðsherra sendi Afríkusambandið ekki friðargæsluliða fljótt á staðinn.

Erlent

Vissu allt um fangaflugið

Þingnefnd á vegum Evrópuþingsins telur fullvíst að ráðamenn í Bretlandi, Póllandi, Þýskalandi, Ítalíu og fleiri Evrópuríkjum hafi vitað af leynilegu fangaflugi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA.

Erlent

Ánægja með lofthelgiseftirlit

Ráðuneytisstjórar eistnesku varnar- og utanríkismálaráðuneytanna segja Eista hæstánægða með lofthelgis-eftirlit NATO. Loftrými bandalagsins sé eitt og óskipt. Ísland er nú eina NATO-ríkið án reglubundins eftirlits.

Erlent

Aldrei jafn óvinsæll

Vinsældir Bush Bandaríkjaforseta hafa aldrei verið jafn litlar og nú, þegar hann flutti næstsíðustu stefnuræðu sína. Í ræðunni boðar hann góða samvinnu við þingmeirihluta Demókrataflokksins í innanríkismálum.

Erlent

Mistakist í Írak geta afleiðingarnar orðið víðtækar

George Bush Bandaríkjaforseti segir að mistakist Bandaríkjaher að ná tökum á ástandinu í Írak hafi það bæði alvarlegar og víðtækar afleiðingar. Bush flytur í klukkan tvö í nótt, að íslenskum tíma, stefnuræðu sína þar sem hann ver meðal annars þá ákvörðun að fjölga hermönnum í Írak.

Erlent

Hákarinn spýtti honum út úr sér

Rúmlega fertugur kafari liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Ástralíu eftir að þriggja metra langur hvíthákarl réðst á hann undan austurströnd landsins í morgun. Hákarlinn beit um búk og síðan höfuð mannsins. Honum tókst með snarræði að pota í auga hákarlsins sem spýtti honum þá út úr sér.

Erlent

Forsætisráðherra: Margir ókostir fylgja aðild að ESB

Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir marga ókosti fylgja aðild að Evrópusambandinu. EES-samningurinn tryggi nægilegt aðgengi að markaði ESB. Geir segir að aðild hafi ekki verið til umræðu á Ísland í mörg ár. Mögulegt sé þó að einn flokkur ræði þann möguleika fyrir þingkosningarnar í vor.

Erlent

Beirút lömuð vegna óeirða

Beirút, höfuðborg Líbanons, er nærri lömuð vegna óeirða sem þar hafa geisað síðan í nótt. Mörg þúsund mótmælendur hafa lagt niður vinnu í Beirút og víðar og krefjast þess að ríkisstjórnin segi af sér svo hægt verði að kjósa nýtt þing. Stjórnvöld segja þetta tilraun Hizbollah til valdaráns.

Erlent

Vantar hermenn í fleiri stríð

Bandarískir hershöfðingjar hafa af því nokkrar áhyggjur að Írak og Afganistan hafi dregið úr getu heraflans til þess að berjast á nýjum vígstöðvum. Yfirhershöfðingi landgönguliðsins sagði í yfirheyrslu hjá þingnefnd að þeir hefðu skoðað aðrar hernaðaráætlanir, og hefðu áhyggjur af því að þar skorti getu á sumum sviðum.

Erlent

Segolene Royal biðst vægðar

Segolene Royal, forsetaframbjóðandi sósíalista í Frakklandi, bað fjölmiðla í dag um að hætta að hnýsast í einkalíf sitt. Fjölmiðlar hafa undanfarið fjallað mikið um meintan ágreining hennar og sambýlismanns hennar Francois Hollande, sem er formaður Sósíalistaflokksins og gerði sér sjálfur vonir um að verða í framboði til forseta. Litlar líkur eru á að fjölmiðlar verði við óskum hennar.

Erlent