Erlent
Breska drottningin í Hvíta húsinu Breska drottningin fór í heimsókn í Hvíta húsið í Bandaríkjunum í dag. Í ræðu sem hún hélt fyrir utan bústað forsetans sagði hún að vinátta Bretlands og Bandaríkjanna væri „náin og traust.“ George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði við sama tækifæri að drottningin væri „góð persóna, sterkur leiðtogi og frábær bandamaður.“ Erlent 7.5.2007 18:03
Aðstoðarmaður Wolfowitz segir af sér Háttsettur aðstoðarmaður Paul Wolfowitz tilkynnti í dag að hann hefði sagt af sér. Kevin Kellems sagði að hneykslið sem Wolfowitz væri flæktur í gerði honum erfitt að sinna starfi sínu hjá Alþjóðabankanum. Kellems, sem vann einnig með Wolfowitz í varnamálaráðuneyti Bandaríkjanna, mun hætta störfum í næstu viku. Erlent 7.5.2007 17:50
WHO harkalega gagnrýnd Alþjóða heilbrigðisstofnunin WHO er harkalega gagnrýnd í breska tímaritinu The Lancet. The Lancet er málgagn bresku læknasamtakanna og eitt virtasta tímarit sinnar tegundar í heiminum. Í grein tímaritsins segir að WHO byggi ráðleggingar sínar oft á tíðum á litlum sem engum sönnunargögnumgögnum. Erlent 7.5.2007 16:29
Í mál af því að hann dó ekki Þegar læknar sögðu John Brandrick að hann væri með krabbamein í briskirtli og ætti aðeins sex mánuði eftir ólifað, brá honum auðvitað í brún. Læknar höfðu fundið sjö sentimeetra langt æxli í þessum sextíu og tveggja ára gamla breska afa. John ákvað þó að gera það besta úr öllu saman og lifa lífinu lifandi. Það er að segja því sem eftir væri af því. Erlent 7.5.2007 15:50
Tvöfalt morð í Svíþjóð Sænska lögreglan leitar nú manns sem talið er að hafi myrt mann og konu í smábænum Hörby sem er rétt norðaustan við Malmö. Líkin voru mjög illa útleikin og skömmu áður en þau fundust sást blóðugur maður á hlaupum í grennd við bæinn. Erlent 7.5.2007 15:22
Trimmaðu skeggið Adolf Tannbursta-yfirskegg Adolfs Hitlers er líklega best þekkta skegg sögunnar. Til þessa hefur verið talið að hann hafi bara verið að fylgja tískunni. Nú hefur hinsvegar fundist ritgerð sem rithöfundurinn Alexander Moritz Frey skrifaði. Þeir Hitler voru báðir óbreyttir hermenn í þýska hernum í fyrri heimsstyrjöldinni. Erlent 7.5.2007 14:36
Ekki meiða Maddie Kate McCann, Móðir Madeleine litlu, þriggja ára stelpunnar, sem rænt var í Portúgal í fimmtudagskvöld, grátbað í dag ræningja hennar að meiða hana ekki eða hræða. Hún bað þá sem rændu henni að láta vita hvar hægt væri að finna hana. "Setjið hana á einhvern öruggan stað og látið einhvern vita hvar," sagði hún í átakanlegu ákalli, sem var sjónvarpað. Portúgalska lögreglan hefur grun um að ræninginn sé breskur. Margir sjónarvottar hafa skýrt frá því að þeir hafi séð hálfsköllóttann mann draga litla telpu með sér að bátahöfn skammt frá hótelinu þar sem Madeleine bjó ásamt foreldrum sínum. Erlent 7.5.2007 13:51
Washington með öndina í hálsinum Elísabet Englandsdrottning er í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. Drottningin kom til Washington í dag þar sem Bush forseti fór fyrir 5000 manna móttökunefnd. Í Washington bíður fræga og fína fólkið með öndina í hálsinum eftir að sjá hverjir verða á gestalistanum þegar frú Elísabet mætir í kvöldverð í Hvíta húsinu. Erlent 7.5.2007 13:30
Morðingja synjað um náðun Forseti Þýskalands hefur synjað Christian Clar um náðun. Klar var einn af morðingjum Rauðu herdeildanna svonefndu. Hann var dæmdur í sexfallt lífstíðarfangelsi árið 1983. Rauðu herdeildirnar voru hryðjuverkasamtök sem frömdu mörg ódæðisverk í Þýskalandi á sjöunda áratug síðustu aldar. Christian Klar er nú 54 ára gamall. Erlent 7.5.2007 13:29
Ekki talið að nokkur hafi komist lífs af Nær útilokað er talið að nokkur innanborðs hafi lifað það af þegar farþegaflugvél hrapaði í skóglendi í Kamerún um helgina. Flak vélarinnar fannst í mýrlendi í suðurhluta landsins. 114 manns voru um borð. Erlent 7.5.2007 13:15
Þriggja ára stúlku enn leitað Enn hefur ekkert spurst til þriggja ára gamallar breskrar stúlku, Madelein McCann, sem saknað hefur verið síðan á fimmutdagskvöldið. Portúgalska lögreglan rannsakar nú fréttir þess efnis að vitni hafi séð sköllóttan mann draga unga stúlku með sér að smábátahöfn nærri sumardvalarstaðnum í Praia da Luz sama kvöld og Madelein hvarf. Erlent 7.5.2007 12:45
Heitir því að sameina Frakka Til átaka kom milli lögreglu og mótmælenda í nokkrum borgum Frakklands í nótt um leið og hægrimenn þar í landi fögnuðu sigri Nicolas Sarkozy í forsetakosningunum í gær. Nýr forseti heitir því að sameina Frakka eftir harðvítuga kosningabaráttu síðustu vikna. Erlent 7.5.2007 12:15
Gæludýrin reykja meira Breskt tryggingafélag hefur varað við því að milljónum gæludýra sé stefnt í hættu með reykingabanninu sem tekur gildi á veitingastöðum fyrsta júlí næstkomandi. Bannið leiði til þess að fólk reyki meira heima hjá sér í stað þess að fara á pöbbinn og fá sér kollu og smók. Gæludýrin þurfi því að þola miklu meiri óbeinar reykingar en hingaðtil. Erlent 7.5.2007 10:50
Datt niður dauður Roskinn saudar-abiskur karlmaður datt niður dauður þegar dómstóll í Mekka úrskurðaði að þrjár fullorðnar dætur hans mættu gifta sig, gegn vilja föðurins. Í undirrétti hafði dómur fallið manninum í vil. Í Saudi-Arabíu gildir sú meginregla að konur megi ekki gifta sig nema með leyfi höfuðs fjölskyldunnar. Erlent 7.5.2007 10:22
Stúlkan er ófundin Enn hefur ekkert spurst til hinnar þriggja ára gömlu Madeleine McCann, sem saknað hefur verið síðan á fimmtudagskvöld. Talið er að henni hafi verið rænt en hún var í sumarleyfi í Portúgal með foreldrum sínum og systkinum. Lögregla hefur stækkað leitarsvæði sitt leitin hefur enn sem komið er engan árangur borið. Teiknuð mynd hefur verið birt af mögulegum ræningja stúlkunnar en hún þykir ekki gefa miklar vísbendingar. Erlent 7.5.2007 10:15
Ekkert svona Kona sem var á reiðhjóli sínu á leið á milli Næstved og Karrebæksminde í Danmörku, varð aldeilis hneyksluð þegar hún hjólaði framá allsnakið par í villtum samförum á akri við veginn. Hún hringdi samstundis í pólitíið sem sendi vaska sveit á vettvang. Erlent 7.5.2007 09:52
Reyna að koma í veg fyrir að hvalveiðibanni verði aflétt Ráðherrar í bresku ríkisstjórninni leggja nú allt kapp á að koma í veg fyrir að hvalveiðibanni verði aflétt á ársfundi alþjóða hvalveiðiráðsins sem hefst í dag í Alaska. Erlent 7.5.2007 08:43
Danir halda sig útaf fyrir sig Danir sem flytja til útlanda gera nákvæmlega það sama og innflytjendur í Danmörku eru gagnrýndir fyrir að gera þar. Þeir halda sig útaf fyrir sig. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem sagt er frá í danska blaðinu 24timer. Erlent 7.5.2007 08:29
18 þúsund manns striplast í Mexíkóborg Rúmlega átján þúsund manns komu saman á aðaltorgi Mexíkó borgar í gær, og klæddu sig úr fötunum. Það var bandaríski ljósmyndarinn Spencer Tunick sem stóð fyrir gjörningnum en hann hefur sérhæft sig í því að mynda nakið fólk í hópum. Erlent 7.5.2007 08:16
Sex látnir í umferðarslysi fyrir utan London Sex létust í bílslysi á M25 hraðbrautinni fyrir utan London í nótt. Dráttarbíll sem var að draga litla rútu keyrði aftan á vörubíl með þessum hrikalegu afleiðingum. Talið er að farþegar rútunnar hafi verið í dráttarbílnum og ljóst er að þeir eru á meðal hinna látnu. Ekkert er vitað um orsakir slyssins að svo stöddu, en umferð var lítil á hraðbrautinni þegar það átti sér stað. Erlent 7.5.2007 07:11
Hermenn handteknir fyrir að ræna og rupla Fjórir bandarískir hermenn og einn lögreglumaður hafa verið handteknir fyrir að fara ránshendi um borgina Greensburg í Kansas sem varð illa úti af völdum skýstrokka á föstudag. Erlent 7.5.2007 07:08
Sarkozy heitir því að sameina Frakka á ný Nicolas Sarkozy, nýkjörinn forseti Frakkklands, heitir því að sameina Frakka á ný eftir harvítuga kosningabaráttu síðustu vikna. Forsetinn nýji sigraði keppinaut sinn Segolene Royal örugglega og greiddu fimmtíu og þrjú prósent þeirra sem tóku þátt atkvæði sitt. Erlent 7.5.2007 07:04
Búið að finna flak farþegaflugvélarinnar Búið er að finna flak farþegaflugvélar sem hrapaði í skóglendi í Kamerún í gær. Ríkisútvarpsstöð í Kamerún greindi frá því fyrr í dag að vélin hefði fundist nærri bænum Mvengue. Erlent 6.5.2007 18:32
Nicolas Sarkozy verður næsti forseti Frakklands Nicolas Sarkozy er sigurvegari frönsku forsetakosninganna með 53 prósent atkvæða þegar þrír fjórðu hlutar atkvæða hafði verið taldir. Sósíalistinn Segolene Royal og stuðningsmenn hennar viðurkenndu ósigur, og þökkuðu um leið fyrir stuðning sautján milljóna frakka. Erlent 6.5.2007 18:22
Sarkozy næsti forseti Frakklands Nicolas Sarkozy er sigurvegari frönsku forsetakosninganna með 53 prósent atkvæða þegar þrír fjórðu hlutar atkvæða hafði verið taldir. Sósíalistinn Segolene Royal og stuðningsmenn hennar viðurkenndu ósigur, og þökkuðu um leið fyrir stuðning sautján milljóna frakka. Erlent 6.5.2007 17:59
Sarkozy líklegur sigurvegari frönsku forsetakosninganna Nicolas Sarkozy verður nýr forseti Frakklands samkvæmt útgönguspám sem birtust í Belgískum og Svissneskum fjölmiðlum. Samkvæmt spánum hlyti Sarkozy rúm 54 prósent atkvæða, en keppinautur hans Segolene Royal 45,5 prósent. Um fimm að staðartíma, þremur tímum áður en kjörstaðir loka höfðu rúm 75 prósent kosið. Erlent 6.5.2007 17:51
Þriggja ára bresk stúlka numin á brott á Portúgal Ekkert hefur spurst til þriggja ára breskrar stúlku sem talið er að numin hafi verið á brott úr herbergi á Portúgal þar sem hún svaf ásamt tveimur systkinum sínum. Stúlkan var ásamt foreldrum sínum í sumarfríi á Algarve. Erlent 6.5.2007 12:19
Síðari umferð frönsku forsetakosninganna hafin Síðari umferð frönsku forsetakosninganna hófst í morgun þar sem flest bendir til að Nicolas Sarkozy muni sigra Segolene Royal nokkuð örugglega. Mikill viðbúnaður er í landinu því óttast er að óeirðir muni blossa upp sigri Sarkozy. Erlent 6.5.2007 12:07
Enn leitað að farþegaflugvélinni í Kamerún Björgunarsveitir leita enn farþegaflugvélar sem talið er að hafi farist í Kamerún í gær. Eitt hundrað og fjórtán manns voru um borð í vélinni, sem hefur þrátt fyrir mikla leit hefur ekki enn tekist að finna. Erlent 6.5.2007 09:59
Síðari umferð forsetakjörs í Frakklandi hafin Síðari umferð forsetakjörs í Frakklandi hófst í morgun. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan sex að íslenskum tíma. Síðustu skoðanakannanir sem birtar voru benda til þess að Nicholas Sarkozy verði hlutskarpari en keppinautur hans Segolene Royal. Erlent 6.5.2007 09:57