Síðari umferð frönsku forsetakosninganna hafin Sveinn H. Guðmarsson skrifar 6. maí 2007 12:07
Síðari umferð frönsku forsetakosninganna hófst í morgun þar sem flest bendir til að Nicolas Sarkozy muni sigra Segolene Royal nokkuð örugglega. Mikill viðbúnaður er í landinu því óttast er að óeirðir muni blossa upp sigri Sarkozy. Rétt eins og fyrir tveimur vikum þegar 85 prósent franskra kjósenda lögðu leið sína á kjörstað í fyrri umferðinni skín sól í heiði hér í Frakklandi. Kjörsóknin hefur líka verið með ágætum það sem af er degi og á meðal þeirra sem búnir eru að kjósa eru forsetaefnin þau Nicolas Sarkozy og Segolene Royal. Talið er nánast öruggt að Sarkozy fari með sigur af hólmi í kosningunum, síðustu skoðanakannanir kosningabaráttunnar bentu til að hann hefði allt að tíu prósentustiga forskot á keppinaut sinn. Þótt dregið hafi í sundur með þeim Sarko og Sego, eins og fjölmiðlar hér í Frakklandi, kalla frambjóðendurna, færðist mikill hiti í kosningabaráttuna á lokasprettinum. Royal fullyrti í útvarpsviðtali á föstudaginn að óeirðir myndu brjótast út um land allt næði hinn umdeildi Sarkozy kjöri, hann sakaði hana á móti í viðtali við dagblaðið Le Parisien um dæmalausan þjösnaskap. Hvað sem brigslyrðum þeirra líður er víst að lögreglan er því albúin að óeirðir brjótist út í borgum og bæjum landsins fari svo að Sarkozy sigri. Lögreglumenn eru til dæmis áberandi á götum Parísar enda hefur verið nokkuð um ólæti hérna síðustu daga, bílar brenndir og rúður brotnar. Allt þetta kemur í ljós þegar bráðabirgðaúrslit verða kunngjörð um leið og kjörstöðum verður lokað klukkan átta í kvöld, eða sex að íslenskum tíma. Stöð 2 verður með beina útsendingu frá París í fréttatíma sínum.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira