Erlent

Þriggja ára stúlku enn leitað

Guðjón Helgason skrifar
Ekkert hefur spurst til Madeleine McCann síðan á fimmtudagskvöldið.
Ekkert hefur spurst til Madeleine McCann síðan á fimmtudagskvöldið. MYND/AP
Enn hefur ekkert spurst til þriggja ára gamallar breskrar stúlku, Madelein McCann, sem saknað hefur verið síðan á fimmutdagskvöldið. Talið er að henni hafi verið rænt en hún var í sumarleyfi í Portúgal með fjölskyldu sinni. Foreldrar hennar höfðu skilið hana eftir sofandi á hótelherbergi ásamt tveggja ára systur og bróður.

Portúgalska lögreglan rannsakar nú fréttir þess efnis að vitni hafi séð sköllóttan mann draga unga stúlku með sér að smábátahöfn nærri sumardvalarstaðnum í Praia da Luz sama kvöld og Madelein hvarf. Lögregla hefur látið gera mynd af manni sem gæti tengst málinu og byggir á frásögn vitna. Myndin hefur ekki verið birt og þykir ekki gefa miklar vísbendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×