Erlent

Ekki meiða Maddie

Óli Tynes skrifar
Kate McCann, Móðir Madeleine litlu, þriggja ára stelpunnar, sem rænt var í Portúgal í fimmtudagskvöld, grátbað í dag ræningja hennar að meiða hana ekki eða hræða.

Hún bað þá sem rændu henni að láta vita hvar hægt væri að finna hana. "Setjið hana á einhvern öruggan stað og látið einhvern vita hvar," sagði hún í átakanlegu ákalli, sem var sjónvarpað. Portúgalska lögreglan hefur grun um að ræninginn sé breskur. Margir sjónarvottar hafa skýrt frá því að þeir hafi séð hálfsköllóttann mann draga litla telpu með sér að bátahöfn skammt frá hótelinu þar sem Madeleine bjó ásamt foreldrum sínum.

Sá möguleiki er því yfir hendi að telpan hafi verið flutt burt á báti. Fyrrverandi lögregluforingi í Portúgal sagði í sjónvarpsviðtali að leitað væri að breskum manni. Hann sagði einnig að vísbendingar væru um að ránið hefði verið vel undirbúið. Foreldrar Madeleine eru bæði læknar og vel efnuð. 100 þúsund pund -- rúmlega 12 og hálf milljón króna hafa verið boðnar fyrir upplýsingar sem gætu upplýst hvarfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×