Erlent
Fimmtán ára gömul stúlka grunuð um morð Fimmtán ára gömul stúlka frá Newcastle var handtekin í Bretlandi í dag, grunuð um að hafa stungið 18 ára gamla konu til bana. Atvikið varð í Wallsend, rétt fyrir miðnætti í gær. Maður á fertugsaldri og kona á þrítugsaldri hafa einnig verið yfirheyrð vegna málsins og leitað er fleira fólks. Erlent 3.8.2007 15:06
Engin ganga til heiðurs Hess Æðsti dómstóll í Bæjaralandi hefur staðfest bann bæjarstjórnarinnar í smábænum Wunsiedel við því að farin verði minningarganga á dánardægri nazistaforingjans Rudolfs Hess. Hess var jarðsettur þar eftir að hann framdi sjálfsmorð 17. ágúst árið 1987. Hann hafði þá setið í stríðsglæpafangelsi bandamanna í Spandau í 46 ár. Erlent 3.8.2007 14:52
Bjargað úr bráðri lífshættu í annað sinn á ævinni Marcelo Cruz bjargaðist giftusamlega úr bráðri lífshættu í annað sinn á ævi sinni þegar Minneapolis brúin hrundi í vikunni. Fyrir sjö árum taldi lögreglan í Norður-Karolínu Cruz af eftir að hann hafði orðið fyrir skoti í vopnuðu ráni. Hann hélt lífi en lamaðist frá mitti. Erlent 3.8.2007 14:01
Ein af ráðgátum Titanic slyssins leyst Ein af stærstu ráðgátum Titanic slyssins er nú loksins leyst. Búið er að bera kennsl á eins árs dreng sem fannst látinn á reki í sjónum sex dögum eftir að skipið sökk árið 1912. Hann var breskur, og hét Sidney Leslie Goodwin. Talið er að 1512 manns hafi farist með Titanic, en aldrei hefur tekist að negla niður ákveðna tölu. Erlent 3.8.2007 13:15
Ítölsk mamma kvartar yfir „litla" stráknum sínum Sikileysk móðir tók húslykilinn af syni sínum, skrúfaði fyrir vasapeningana hans og keyrði hann á lögreglustöð bæjarins þegar hann kom of seint heim eitt kvöldið. Þetta væri ekki frásögur færandi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að „litli strákurinn" er á sjötugsaldri. Erlent 3.8.2007 12:20
Skyggni í Mississippi á aðeins 30 sentímetrar Leit kafara að fórnarlömbum í rústum brúarinnar yfir Mississippi ána var í nótt frestað, vegna hættulegra aðstæðna. Skyggni í ánni nemur aðeins um þrjátíu sentímetrum. Samkvæmt gögnum bandaríska samgönguráðuneytisins er um fjórðungur bandarískra brúa talin úreltur. Erlent 3.8.2007 12:19
Rússar vilja auka viðbúnað sinn á Miðjarðarhafinu Yfirmaður rússneska flotans segir að Rússar eigi að láta meira til sín taka á Miðjarðarhafinu. Ummælin hafa vakið nokkra athygli í ljósi þess að Rússland liggur hvergi að hafinu og því ekki ljóst hvar rússneskur Miðjarðarhafsfloti ætti að hafa bækistöð. Erlent 3.8.2007 09:57
Frakkar selja Líbýu eldflaugar Líbýumenn og Frakkar hafa gert með sér vopnasölusamning sem gerir ráð fyrir því að Líbýa kaupi franskar eldflaugar sem ætlað er að granda skriðdrekum. Þetta mun vera fyrsti vopnasamningurinn sem vestrænt ríki gerir við Líbýu eftir að viðskiptabanni á landið var aflétt árið 2004. Erlent 3.8.2007 08:47
Um 150 manns látið lífið í flóðum Að minnsta kosti 150 manns hafa látið lífið og um 20 milljónir þurft að flýja heimili sín vegna mikilla flóða sem nú geysa í suðaustur Asía. Ár hafa flætt yfir bakka sína og mikil landsvæði farið undir vatn. Erlent 3.8.2007 07:56
Freista þess að ná samkomulagi í Darfur Talsmenn uppreisnarmanna í Darfur eru væntanlegir til Tansaníu í dag til þess að taka þátt í viðræðum sem Sameinuðu þjóðirnar standa fyrir. Uppreisnarmennirnir ætla að freista þess að ná samkomulagi sín í milli áður en formlegar friðarviðræður við stjórnvöld í Súdan hefjast. Erlent 3.8.2007 07:53
Er Madeleine í Belgíu? Lögreglan í Belgíu rannsakar nú fréttir þess efnis að Madeleine McCann, litla stúlkan sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal kunni að vera í landinu. Belgísk kona hafði samband við lögreglu eftir að hún sá stúlku á veitingastað nálægt Maastricht sem hún sagði hafa verið sláandi líka Madeleine. Erlent 3.8.2007 07:02
Líkamsleifar seldar til galdraiðkunar Yfirvöld í Mósambík hafa handtekið þrjá aðila vegna meintrar aðildar þeirra að viðskiptum með líkamshluta. Málið tengist morðum og limlestingum á sjö konum og einu barni í Cabo Delgado héraðinu sem framin voru í vikunni. Erlent 2.8.2007 23:26
Tilræðismaður lést af völdum brunasára Kafeel Ahmed, annar mannanna tveggja sem keyrði bíl á flugstöðvarbygginguna í Glasgow þann 30. júní síðastliðinn, lést í kvöld af völdum sára sinna. Að sögn talsmanna lögreglunnar í Starthclyde brenndist maðurinn mjög illa þegar kviknaði í bílnum og var hann með brunasár á yfir 90% af líkamanum þegar hann var handtekinn. Erlent 2.8.2007 22:43
Eldingar verða rúmlega hundrað manns að bana í Kína Eldingar í Kína urðu 141 að bana í júlí. Þetta er mesta mannfall af völdum eldinga síðan mælingar hófust í landinu árið 2000. Æðsti embættismaður veðurathugana í Kína kennir hlýnun jarðar um hið öfgakennda árstíðarbundna veðurfar.Um sjö hundruð manns hafa dáið vegna flóða á meðan milljónir annarra hafa búið við þurrk. Erlent 2.8.2007 22:06
Talibanar samþykkja að ræða örlög suður-kóresku gíslanna Talibanarnir sem hafa 21 suður-kóreskan gísl í haldi hafa samþykkt að hitta suður-kóreska embættismenn augliti til auglitis til að ræða örlög gíslanna sem þeir haf haft í haldi í tvær vikur. Staðsetning fundarins hefur ekki verið ákveðin en talibanarnir neituðu að hitta embættismennina þar sem Nato hersveitir væru staðsettar. Erlent 2.8.2007 20:26
Bandaríska þingið samþykkir hertar siðareglur Bandaríska þingið samþykkti í dag að herða siðareglur þingmanna með það að markmiði að minnka áhrif þrýstihópa á þingið. Frumvarpið var samþykkt níu mánuðum eftir að Demókratar náðu völdum í bandaríska þinginu í kjölfar hneykslismála sem mörg snertu Repúblikana. Erlent 2.8.2007 19:51
Krónprinsinn í Lególandi Friðrik krónprins Danmerkur heimsótti í vikunni Lególand ásamt konu sinni Mary og börnum. Erlent 2.8.2007 19:44
Rússar reyna að eigna sér svæði undir norðurpólnum Rússar urðu í dag fyrstir til að komast á kafbáti á hafsbotninn undir norðurpólnum. Tilgangur ferðarinnar var að eigna sér svæðið, en þar er möguleiki á að finna bæði olíu og gas. Utanríkisráðherra Kanada finnst lítið til ferðarinnar koma. Erlent 2.8.2007 19:35
Bjargaði lífi mæðgna Íslenskur karlmaður bjargaði lífi mæðgna þegar brú yfir Mississippifljót í Minneapolis í Bandaríkjunum gaf sig á háannatíma í gærkvöldi. Tugir bíla voru á brúnni þegar hún brast og myndaðist skelfingarástand þegar fólkið reyndi að koma sér úr bílum sínum og synda í land. Erlent 2.8.2007 19:25
Skipt um óþéttan loka í Endeavour Bandaríska geimferðastofnunin NASA tilkynnti á miðvikudaginn að skipta ætti um óþéttan loka í geimferjunni Endeavour. Áætlað er að skjóta ferjunni á loft næsta þriðjudag. Erlent 2.8.2007 15:31
Dánartalan hækkar Fleiri lík hafa fundist í kjölfar þess að brú hrundi í Minneapolis í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Staðfest hefur verið að fjóri séu látnir en Reuters fréttastofan hefur eftir lögreglustjóranum í borginni að fleiri hafi fundist látnir á slysstaðnum. Hann vildi þó ekki segja hve mörg lík hefðu fundist til viðbótar. Erlent 2.8.2007 13:22
Lögreglustjóri Lundúna hreinsaður af ásökunum Lögreglustjóri Lundúna hefur verið hreinsaður af ásökunum um að hafa logið að almenningi í tengslum við dauða Jean Charles de Menezes. De Menezes var skotinn til bana af lögreglumönnum. Skýrslan kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu að aðstoðarlögreglustjórinn Andy Hayman hafi villt um fyrir almenningi. Erlent 2.8.2007 11:49
Gen örvhentra líklega fundið Vísindamenn hafa í fyrsta skipti uppgötvað gen sem virðist auka líkur á að fólk verði örvhent. Genið LRRTM1 virðist gegna lykilhlutverki í að stjórna því hvaða hluti heilans stýrir starfsemi á borð við mál og tilfinningar samkvæmt rannsókninni. Erlent 2.8.2007 09:00
Varað við flóðbylgju í Japan Einn lést þegar jarðskjálfti sem var 6,4 á Richter skók kyrrahafseyjuna Sakhalin í Rússlandi, norður af Japan. Engar meiriháttar skemmdur urðu á mannvirkjum. Flóðbylgjuviðvörun var í kjölfarið gefin út fyrir Hokkaídoeyju við Vesturströnd Japans. 20 centimetra bylgja hefur komið á land nú þegar, og er búist við stærri bylgjum. Erlent 2.8.2007 08:32
Mattel afturkallar Ficher Price leikföng Mattel leikfangaframleiðandinn ætlar að endurkalla eina og hálfa milljón Ficher Price leikfanga vegna gruns um að málning sem þau eru skreytt með innihaldi of mikið blý . Leikföngin voru framleidd í verskmiðju í Kína, sem Mattel hefur skipt við í minnst fimmtán ár. Blý í málningu er talið geta valdið fjölda heilsuvandamála hjá börnum, svo sem námsörðugleika og heilaskemmda. Erlent 2.8.2007 08:18
Obama tilbúinn að ráðast gegn hryðjuverkamönnum innan Pakistan Barack Obama, frambjóðandi í forvali Demókrata til bandarísku forsetakosninganna, sagði í dag að hann væri reiðubúinn til að fyrirskipa hernaðaraðgerðir gegn al-Kaída í Pakistan án samráðs við stjórnvöld þar í landi ef hann kæmist til valda. Erlent 2.8.2007 08:10
Minnst sjö látnir og sextíu slasaðir eftir brúarslys Minnst sjö eru látnir eftir að átta akreina brú í Minnesota hrundi í gærkvöld á háannatíma, með þeim afleiðingum að fjöldi bíla steyptist niður í Mississippi ána. Unnið hefur verið að viðgerð brúarinnar undanfarna mánuði. Erlent 2.8.2007 08:06
Brú hrundi í Mississippi fljót Brú yfir Mississippi ána sem bar meginumferðaræð í Minneapolis í Bandaríkjunum féll í ána á aðalumferðartíma síðdegis. Fjöldi bíla, vitni segja allt að 150, þar á meðal skólarúta, voru á brúnni og lentu margir þeirra í ánni. Að minnsta kosti þrír eru látnir. Brúarhafið í heild gaf eftir. Heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna segir í tilkynningu að ekki sé um hryðjuverk að ræða. Framkvæmdir stóðu yfir við brúna eftir að steypuskemmdir komu í ljós á henni í athugun 2006. Um 200,000 bílar fara yfir brúna daglega. Þetta var stálbogabrú, smíðuð 1967. Erlent 2.8.2007 01:21
Mannræningjarnir höfðu leitað að fórnarlömbum um nokkurt skeið Talibanahópurinn, sem hefur tuttugu og einn suður-kóreskan gísl á valdi sínu, hafði verið að leita að fórnarlömbum um nokkurt skeið, eða frá því að æðsti maður hópsins, Daro Kahn, var handtekinn af bandarískum hermönnum í Qarabagh-héraðinu í júní. Þetta kemur fram í viðtali við einn af æðstu mönnum hópsins sem tímaritið Newsweek birtir í dag. Erlent 1.8.2007 23:23
Afrit af samskiptum brasilísku flugmannanna birt Afrit af síðustu sekúndum samskipta flugmannanna tveggja sem voru við stjórnvölinn þegar versta flugslys í brasilískri sögu átti sér stað var í dag lesið upp fyrir rannsóknarnefnd brasilíska þingsins. Samkvæmt upptökum úr flugvélinni kallaði annar flugmanna að hægja þyrfti ferðina en hinn svaraði því til að hann gæti það ekki. Erlent 1.8.2007 21:59